Harpan aðeins lítið brot af heildarmyndinni fyrir hrunið Magnús Halldórsson skrifar 9. ágúst 2012 10:08 Inn á myndinni sést Harpan, lengst til vinstri, en hún er aðeins lítið brot af heildarmyndinni. Lengst til hægri eru framtíðarhöfuðstöðvar Landsbankans teiknaðar, í tveimur byggingum. Hótelbyggingin er við hlið Hörpunnar, við hafnarbakkann. Fyrir framan hótelið og Hörpuna er síðan viðskiptamiðstöð, en sú hugmynd er ekki lengur til umræðu.
Svissneska fjárfestingafélagið World Leisure Investment átti hæsta boð í byggingarétt á reitnum við hlið Hörpunnar, og hyggst reisa þar hótelbyggingu sem verður fimm hæða, auka tveggja hæða bílastæðakjallara niður á við. Samkvæmt samþykktu skipulagi má byggingin vera 30 þúsund fermetrar að stærð, en til samanburðar er Harpan 28 þúsund fermetrar. Eins og fréttastofa hefur greint frá eru samningaviðræður vegna hótelsins nú á lokastigum og er enn stefnt að uppbygging þess hefjist á upphafsmánuðum næsta árs, og verði fullbúið til notkunar 2015. Fjárfestingin verður í heild upp á tæpa átta millljarða, þ.e. 40 milljónir evra í bygginguna sjálfa, eða um sex milljarða króna, og síðan 1,8 milljarða í byggingaréttinn. Meðal þess sem ekki er enn frágengið er að fá rekstraraðila að hótelinu, en nær fullvíst er að það verði rekið undir merkjum Marriot-hótelkeðjunnar. Hugmyndir um byggingamagn á svæðinu við Hörpuna voru hástemmdar fyrir hrun, en þær hafa ekki verið lagðar alfarið á hilluna. Landsbankinn hefur enn hug á því að byggja höfuðstöðvar sínar í miðborginni, en í umsögn bankans vegna vinnu við atvinnustefnu Reykjavíkurborgar kom fram að bankinn vildi byggja nýjar höfuðstöðvar fyrir árið 2015. Bankinn horfir m.a. til sama reits og horft var til fyrir hrunið. Á meðfylgjandi mynd, sem birtist með umfjöllun í Húsum og Híbýlum í septembermánuði 2008, sést hvernig útlit svæðisins var hugsað, skömmu áður en fjármálakerfið hrundi.
Mest lesið Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Samstarf Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Sjá meira