Framkvæmdastjóri hjá Icelandair: Hækkanirnar munu engu skila Magnús Halldórsson skrifar 9. ágúst 2012 12:15 Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels.
Stjórnvöld leita nú leiða til þess að brúa 16 til 20 milljarða gat með skattahækkunum og niðurskurði í fjárlögum fyrir næsta ár. Meðal þess sem horft er til er að hækka virðisaukaskatt á gistikostnað í ferðaþjónustu úr sjö prósent í 25,5 prósent, það er úr neðsta þrepi í það efsta. Eins og fréttastofa greindi frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær hafa þessar hugmyndir mælst illa fyrir hjá þeim sem eru í forsvari fyrir ferðaþjónustufyrirtæki hér á landi, en Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, sagði hugmyndirnir óskiljanlegar og stórskaðlegar fyrir atvinnugreinina í heild, ekki síst þar sem hún ynni yfirleitt tvö ár fram í tímann og verðlagning næsta árs, hjá ferðaheildsölum erlendis, væri þegar ákveðin. Hækkunin myndi því engu skila fyrir ríkið, þegar heildarmyndin væri skoðuð, þar sem hún bitnaði beint á arðsemi fyrirtækjanna. Stjórnvöld hafa enn ekki ákveðið hvort þessari hækkun verður haldið inn í fjárlögum, en samkvæmt drögum sem unnið er eftir er hækkunin inn í áformunum. Frekari kynning á einstökum aðgerðum, með hagsmunaðilum, fer fram á næstu vikum og mánuðum og verða lokaákvarðanir um hvernig gati í fjárlögum verður lokað þá teknar.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Sjá meira