Gengið frá sölu höfuðstöðva Orkuveitunnar Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 9. október 2013 20:51 Fjármögnun kaupa á höfuðstöðvum Orkuveitunnar lokið.
Fjármögnun kaupa á höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur, sem var í umsjá Straums fjárfestingabanka, er lokið. Með sölu á fasteigninni eru allir þættir Plans Orkuveitunnar og eigenda fyrirtækisins komnir á áætlun segir í tilkynningu frá Orkuveitunni. Lokið verður við fullnaðarfrágang skjala tengdum sölu og leigu á húsnæðinu á næstu vikum. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti snemma árs kauptilboð í höfuðstöðvar fyrirtækisins að Bæjarhálsi 1 og Réttarhálsi 1 í Reykjavík. Sala þeirra er mikilvægur þáttur í framvindu Plansins, aðgerðaáætlunar Orkuveitunnar og eigenda, með því að lausafjárstaða fyrirtækisins batnar sem söluandvirðinu nemur, segir ennfremur í tilkynningunni. Söluverðið er 5,1 milljarður króna. Straumur fjárfestingabanki gerði kauptilboðið fyrir hönd óstofnaðs félags, með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og endanlega fjármögnun. Nú er hvoru tveggja lokið. Orkuveitan mun leigja húseignirnar til 20 ára og hafa rétt til að kaupa þær aftur eftir 10 ár eða við lok leigutímans. Haft er beint eftir Bjarna Bjarnasyni, forstjóra, í tilkynningunni sem segir að með sölu höfuðstöðvanna sé eignasala Orkuveitunnar komin á áætlun. Samningurinn sé Orkuveitunni fjáhagslega hagstæður, lausafjárstaðan styrki og dragi úr áhættu í rekstrinum. Þá telur Bjarni mikilvægt að fyrirtækið eigi þess kost að kaupa eignina aftur þyki það skynsamlegt þegar þar að kemur.
Mest lesið Gréta María óvænt hætt hjá Prís Viðskipti innlent Breyta nafni Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Messenger-forritið heyrir sögunni til Viðskipti erlent Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Viðskipti innlent Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Viðskipti innlent Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Viðskipti innlent Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Viðskipti innlent Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Breyttur opnunartími hjá Sorpu Neytendur Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Frumvarp um kílómetragjald samþykkt á þingi Síminn fær einn að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Sjá meira