„Það er alltaf svo mikil list í kringum garðinn“ Baldvin Þormóðsson skrifar 30. júlí 2014 13:30 "Það finna allir fyrir þessari orku þegar þeir koma í garðinn.“ vísir/anton „
Við erum búin að vera með Álfagarðinn í fjögur ár og höfum alltaf verið með Listamannadaginn,“ segir Ragnhildur Jónsdóttir en hinn árlegi Listamannadagur verður haldinn hátíðlegur í Álfagarðinum næsta laugardag. „Það eru svo margir listamenn sem tengjast okkur og þeir eru að vinna í garðinum, úti með trönur að mála og skissa,“ segir Ragnhildur en hún er búin að setja upp ansi áhugaverða dagskrá yfir allan daginn. „Það verður spilað á líru og írskar sekkjapípur, öðruvísi hljóðfæri en maður er vanur og svolítið álfaleg,“ segir hún og hlær. „Síðan verður danshópur frá Þýskalandi sem ætlar að túlka verur náttúrunnar.“ Álfagarðurinn er staðsettur í Hellisgerði í Hafnarfirði en garðurinn býður upp á úrval listmuna og listaverka sem tengjast álfum og öðrum verum Álfaheima. „Það er svo mikil skapandi orka í kringum álfana og fallegur kraftur á milli álfa og manna,“ segir Ragnhildur en oft má sjá listamenn að störfum í Hellisgerði. „Það finna allir fyrir þessari orku þegar þeir koma í garðinn, en hann er líka bara fallegur garður sama í hvaða vídd þú horfir,“ segir Ragnhildur og bætir því við að Listamannadagurinn í Álfagarðinum hafi alltaf tekist vel. „Meira að segja þegar það er búið að spá rigningu, sem hefur verið í hvert einasta skipti, þá styttir alltaf upp.“ Ragnhildur hélt nýverið litla álfahátíð þar sem frumflutt var nýtt lag sem samið var sérstaklega við álfabæn. „Það er alltaf svo mikil list í kringum garðinn,“ segir Ragnhildur sem leiðir einnig álfagöngu um garðinn klukkan 13 sem verður á sérstöku sumartilboði. „Það verða líka blöð og litir fyrir börnin en fullorðnir geta tekið með sínar listagræjur eða bara notið þess að vera þarna með okkur,“ segir Ragnhildur en hátíðahöldin hefjast klukkan 13 á laugardaginn í Hellisgerði.
Mest lesið Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Lífið Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Lífið Vók Ofurmenni slaufað Gagnrýni „Við viljum alls ekki fá of marga“ Lífið Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Lífið „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Lífið Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina Lífið Litríkur karakter sem var engum líkur Lífið Fleiri fréttir Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Ein heitasta söngkona landsins á lausu Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Gaf eistum kærastans gælunafn „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“