Framkvæmdir hefjast við vatnsverksmiðjuna á Rifi 30. nóvember 2009 04:30 komið með byggingarefni Efni í byggingu vatnsverksmiðju Iceland Glacier Products á Rifi á Snæfellsnesi hefur legið við hafnarbakkann í tæpt ár.mynd/Snæfellsbær
Umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar hefur samþykkt teikningar að sjö þúsund fermetra vatnsátöppunarverksmiðju Iceland Glacier Products á Rifi á Snæfellsnesi. Fyrirtækið, sem er í eigu hollenska athafnamannsins Otto Spork, framleiðir átappað vatn á flöskum undir merkjum Iceland Glacier Water. Fyrirhugað var að byggingin yrði tíu þúsund fermetrar að flatarmáli og barst byggingarefni í hana til Rifs fyrir um tveimur árum. Hún stóðst ekki innlendar reglugerðir og lá byggingarefnið á hafnarbakkanum í ár. Forsvarsmenn fyrirtækisins breyttu því byggingunni. Stefnt er á að framkvæmdir við byggingu vatnsverksmiðjunnar hefjist í næsta mánuði og hefur tilboðum í hana verið skilað. Reiknað er með að framleiðsla verði komin á skrið árið 2011. Áætlað er að á bilinu þrjátíu til fjörutíu manns muni vinna við framleiðsluna. Þeir bæjarbúar sem Fréttablaðið hefur rætt við eru vongóðir um að verkið hefjist sem fyrst. Ekki hefur náðst í Spork í tengslum við vinnslu fréttarinnar. Rúmt ár er síðan Snæfellsbær tengdi vatnslögn fyrir Iceland Glacier Products á lindarsvæði Snæfellsbæjar í Fossárdal og hefur þar einn starfsmaður á vegum fyrirtækisins tappað því á blöðrugáma í bráðabirgðahúsnæði. Gámarnir eru fluttir suður til Reykjavíkur. Vífilfell sá um átöppun á nokkrar flöskur fyrir fyrirtækið, sem notaðar voru í kynningarskyni í fyrravor. Ekki liggur fyrir hvort vatnið er flutt út í flöskum eða blöðrugámum eða hvoru tveggja. jonab@frettabladid.is
Mest lesið „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira