Leki hefur komið upp í þaki á endurnýjaðri vestari álmu Fossvogsskóla. Lekinn kom upp í desember og var þá gert við hann samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Eftir að skólinn opnaði á ný í Fossvogi eftir viðgerðir vegna myglu hefur þakið aftur lekið í miklu rigningaveðri.
Fossvogsskóla var lokað á síðasta ári vegna myglu í húsnæði skólans en sýnataka leiddi í ljós raka-og loftgæðavandamál. Bæði nemendur og starfsfólk skólans höfðu kvartað undan einkennum vegna myglu.
Eftir úttekt kom meðal annars í ljós að ástand þaks í Vesturlandi í skólanum var mun verra en fyrstu athuganir leiddu í ljós. Ráðist var í miklar endurbætur á húsnæðinu þar sem nánast allt var endurnýjað í skólanum. Þannig var húsbúnaður meðal þess sem var endurnýjaður.
Á foreldrafundi vegna málsins kom fram að framkvæmdirnar myndu kosta á fimmta hundrað milljónir króna. Ekki hafa fengist upplýsingar um hver endanlegur kostnaður er áætlaður. Endurnýjaður Fossvogsskóli opnaði á ný í Fossvogsdal eftir áramót.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kom upp leki í Vesturlandi sem er vestari álma skólans í desember. Gert var við lekann en ekki hefur tekist að koma í veg fyrir hann alfarið þar sem sama húsnæði hefur lekið í mikilli úrkomutíð undanfarið.
Verið er að vinna í málinu en þeir sem fréttastofa ræddi við í morgun sögðu þetta vera mikið áfall en fólk stóð í þeirri trú að búið væri að koma í veg fyrir allan leka. Skólastjóri Fossvogsskóla vildi ekki tjá sig opinberlega um málið þegar fréttastofa hafði samband við hana.
Bjarni Brynjólfsson upplýsingastjóri borgarinnar segir þetta alls ekki gott mál, ítrekað hafi verið reynt að koma í veg fyrir lekann á Vesturlandi í Fossvogsskóla.
Gert verði við þakið við fyrsta tækifæri eða þegar veður leyfir. Engar rakaskemmdir hafi orðið. Honum finnst afar leiðinlegt að þetta komi upp í nýlega endurnýjuðu þaki. Virðist þetta vera einhver hönnunargalli.
