Niðurgreiðsla íslenskra lána í heimabanka Byrs 2. maí 2009 13:52
Niðurgreiðsla lána er nýjung hjá Byr, sem gerir viðskiptavinum kleift að greiða niður íslensk lán í heimabankanum á einfaldan og aðgengilegan hátt. Greiða má niður flest lán sem tekin hafa verið hjá Byr í íslenskum krónum og einnig lán hjá Íbúðalánasjóði. Niðurgreiðsla lána getur falið í sér hagkvæma sparnaðarleið fyrir lántakendur, að sögn Atla Arnar Jónssonar, framkvæmdastjóra hjá Byr sparisjóð. Þetta kemur fram í tilynningu frá Byr. Þar segir ennfremur að þjónustan hafi verið þróuð í samstarfi við upplýsingatæknifyrirtækið Teris og sé sú eina sem býðst sem aðgengileg lausn í heimabanka. Umrædd þjónusta er viðskiptavinum Byrs að kostnaðarlausu en bæði er gefinn kostur á stökum aukagreiðslum og reglubundnum mánaðarlegum aukagreiðslum inn á höfuðstól lána. Niðurgreiðsla láns fer í grunndráttum þannig fram, að greitt er aukalega af höfuðstóli þess. Aukagreiðslan lækkar höfuðstólinn "hraðar" en upphaflegar lánsforsendur gera ráð fyrir. „Við það verður sá kostnaður lægri sem reiknast í vexti og verðbætur af láninu, auk þess sem greiðslubyrði þess verður jafnt og þétt léttari en ella. Þá má einnig lækka endanlegan lánskostnað með því að greiða höfuðstól alveg upp í einni eða fleiri aukagreiðslum eða með því að nýta það svigrúm sem skapast til þess að stytta lánstímann." Ekkert uppgreiðslugjaldNýja þjónustan byggir á afar notendavænni lausn sem hefur verið felld að heimabanka Byrs. Einungis þarf að velja viðkomandi lán og tiltaka þá upphæð sem greiða á höfuðstól þess niður um. Ef lán er frá Íbúðalánasjóði þarf viðskiptavinur að slá upplýsingar sjálfur inn en hann getur nálgast þær upplýsingar í gegnum heimabanka Byrs. Ekkert uppgreiðslugjald er tekið af íslenskum lánum hjá Byr sem eru undir 50 milljónum króna og rennur öll aukagreiðslan í þeim tilvikum til niðurgreiðslu höfuðstólsins. Vegna vaxtaútreikninga, þarf þó að gæta þess að lánið sé greitt niður á gjalddaga. Að öðrum kosti geta vextir, sem reiknast með næstu afborgun, haft áhrif á hve stór hluti aukagreiðslunnar rennur til lækkunar höfuðstólsins. Spara má umtalsverðar fjárhæðirUmtalsverður sparnaður getur myndast við niðurgreiðslu láns, jafnvel þó að upphæðirnar sem í hlut eiga séu ekki háar. Sem dæmi má nefna 11 milljón króna íbúðalán á 6% verðtryggðum vöxtum til 40 ára. Sé miðað við að lánið hafi verið tekið í september 2007 og 5% verðbólgu að meðaltali á lánstímanum, getur lántakandinn sparað sér um 10,5 milljón króna með 10.000 króna aukagreiðslu á mánuði. Sem dæmi um óverðtryggt 1 milljón króna lán á 22% vöxtum til 5 ára, þá sparast 105 þúsund krónur á lánstímanum með sömu mánaðarlegu aukagreiðslu. „Með þessari nýstárlegu lausn viljum við auðvelda viðskiptavinum okkar að laga fjármál sín að breyttum aðstæðum og þannig auðvelda þeim að standa vörð um fjárhagslegu heilsuna sína. Með því að greiða lán niður, má byggja upp hagstæðan sparnað og njóta léttari greiðslubyrði en ella, þegar fram í sækir. Að okkar mati var því mikilvægt að einfalda það flókna og oft á tíðum tímafreka ferli sem slíkar höfuðstólsgreiðslur fela í sér. Auk þess sem byggt er á aðgengilegri heimabankalausn, þá er hún sveigjanleg, þar sem greiða má lán niður með annars vegar stökum og hins vegar föstum mánaðarlegum aukagreiðslum, allt eftir aðstæðum hvers og eins," segir Atli í tilkynningunni.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira