Íslendingar komu að gerð norsku skýrslunnar Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. desember 2010 21:00 Höfuðstöðvar Landsbankans í Austurstræti. Ársreikningar voru villandi og rangir og hagnaður falsaður, að mati Norðmanna hjá Lynx sem unnu skýrslu um bankann fyrir sérstakan saksóknara.
Skýrsla fyrirtækisins LYNX Advokatfirma um starfsemi Landsbankans er mikill áfellisdómur yfir stjórnendum Landsbankans og endurskoðendum hans, PricewaterhouseCoopers. Fram kemur í skýrslunni að Íslendingar hafi komið að gerð hennar, en hún var unnin fyrir embætti sérstaks saksóknara. Skýrsluhöfundar höfðu aðgang að öllum skjölum hjá Fjármálaeftirlitinu og þeim gögnum sem embætti sérstaks saksóknara hafði aðgang að hjá skilanefnd Landsbankans. Þá kemur fram að Norðmennirnir hjá LYNX hafi notið aðstoðar frá Ernst & Young á Íslandi og eru þau Hrólfur Þór Valdimarsson og Sigrún Pétursdóttir nefnd sérstaklega í því samhengi. Þau hafi fengið það hlutverk að yfirfara og veita aðstoð sem snertu skjöl á íslensku frá endurskoðendum. Skýrsluhöfundar segja að helstu takmarkanir á störfum þeirra við gerð skýrslunnar hafi falist í skorti á beinum aðgangi að bankanum sjálfum, þ.e skilanefnd og slitastjórn. Þá hafi þeir heldur ekki haft stöðu til að taka skýrslur af fyrrverandi starfsmönnum bankans og fyrrverandi endurskoðendum. Skýrsluhöfundar telja að þess vegna sé nauðsynlegt fyrir embætti sérstaks saksóknara að fara sérstaklega yfir öll gögn Landsbankans til að sannreyna ályktanir og niðurstöður þeirra.
Tengdar fréttir Norska skýrslan: Villandi ársreikningar og falskur hagnaður Landsbankans Ársreikningur Landsbankans fyrir árið 2007 var rangur og villandi á margvíslegan hátt, hagnaður var falsaður og eigið fé var gróflega ofmetið, að því er fram kemur í skýrslu norska fyrirtækisins LYNX Advokatfirma, en fréttastofa hefur skýrsluna undir höndum. 9. desember 2010 21:00 Mest lesið Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira
Norska skýrslan: Villandi ársreikningar og falskur hagnaður Landsbankans Ársreikningur Landsbankans fyrir árið 2007 var rangur og villandi á margvíslegan hátt, hagnaður var falsaður og eigið fé var gróflega ofmetið, að því er fram kemur í skýrslu norska fyrirtækisins LYNX Advokatfirma, en fréttastofa hefur skýrsluna undir höndum. 9. desember 2010 21:00