Fjárfestar óttast samdráttarskeið 21. febrúar 2008 21:33 Miðlarar fylgjast með tölunum á bandarískum hlutabréfamarkaði. Mynd/AP
Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Bandaríkjunum í dag en fjárfestar þar telja nú meiri líkur en minni á því að samdráttarskeið sé yfirvofandi vestanhafs. Fréttirnar hafa svosem ekki verið góðar í vikunni en fjárfestar hafa fram til þessa talið líkur á að verri fréttir geti leitt til þess að seðlabankinn grípi inn í og lækki stýrivexti frekar til að létta á ástandinu. Í minnispunktum frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi bankastjórnar bandaríska seðlabankans, sem birtar voru í vikunni, kemur hins vegar fram að aukist verðbólga meira á milli mánaða verði dregið úr frekari lækkunum vaxta. Stýrivextir hafa lækkað í Bandaríkjunum um 1,25 prósent frá áramótum vegna ástandsins á lánsfjármörkuðum, sem rót á að rekja til mikilla vanskila á bandarískum fasteignalánamarkaði, svo fátt eitt sé nefnt. Nýjustu hagvísar, sem birtir voru í dag, voru ekki til þess að létta brúnina á bandarískum fjárfestum. Tölurnar sýna að framleiðni hefur dregist meira saman á milli mánaða en reiknað hefur með auk þess útlit er fyrir að hagvöxtur verði minni á þessu ári en því síðasta. Þetta er í samræmi við efnahagsspá bandaríska seðlabankans, sem sömuleiðis var birt í gær. Um hálfu prósentustigi munar á fyrri spá bankans og þeirri sem gefin var út í gær en reiknað er með að hagvöxtur verði í kringum tvö prósent hið mesta.Næsti vaxtaákvörðunardagur bandaríska seðlabankans er 18. mars næstkomandi. Associated Press-fréttastofan hefur eftir fjárfestum að þeir séu þegar farnir að reikna með allt að 50 punkta lækkun. Reikna má með miklum vonbrigðum í þeirra röðum ákveði seðlabankinn að láta af frekari lækkun í bili og horfa fremur til þess að draga úr verðbólgu, sem hefur aukist umfram væntingar samhliða vaxtalækkun frá á haustdögum.Dow Jones-hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,15 prósent við enda viðskiptadagsins á bandarískum hlutabréfamörkuðum í dag en Nasdaq-vísitalan um 1,17 prósent.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira