Forseti Evrópusambands sparisjóða sendir Steingrími bréf 11. maí 2009 20:30 Heinrich Haasis
Heinrich Haasis, forseti Evrópusambands sparisjóða, hefur sent Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra opið bréf er varðar mikilvægi sparisjóðanna við endurreisn íslenska bankakerfins. Í fréttatilkynningu frá Sparisjóðunum á Íslandi segir að í bréfi Haasis komi fram að hin alþjóðlega fjármálakreppa krefjist mikils af stjórnvöldum,fjármálageiranum og iðnaði og að íslenskt efnaghagslíf gangi nú í gegnum mikla prófraun. Hann segir að það sé lífspursmál fyrir Ísland að taka réttar ákvarðanir nú varðandi framtíð bankakerfisins og ef það takist verði efnahagsbatinn varanlegur og taki styttri tíma en ella. Haasis segir að íslenska sparisjóðakerfið sé í einstakri aðstöðu til að hjálpa til við endurreisn íslensks efnahags og ef þeir fá það hlutverk sé það afar skilvirk leið og gefi góð fyrirheit varðandi þá stefnu sem íslensk stjórnvöld marka sér. Heilindi og ábyrgð eru hornsteinn sparisjóðakerfisins og það er stefna sparisjóðanna að bjóða öllum landsmönnum fjármálaþjónustu í sínu heimahéraði. Þeir eru hornsteinn í héraði og það er í eðli þeirra að horfa lengra en til skammtímagróða. Haasis segir í bréfinu að núverandi ástand hafi staðfest og jafnvel styrkt viðskiptamódel sparisjóðanna, en að það viðskiptamódel hafi verið gagnrýnt í mörg ár fyrir að vera gamaldags og jafnvel óskilvirkt. Þetta módel hafi þó sannað sig nú og sparisjóðirnir hafa skarað framúr í því umhverfi sem nú er uppi og grunnurinn að því er viðskiptamódel þeirra. Haasis leggur áherslu á að það sé ómögulegt að tala um stöðugt efnahagsumhverfi án sparisjóðanna því þeir sjá um að þjónusta nærsamfélagið og þau svæði sem eru utan hringiðu fjármálageirans. Bréfið í heild má sjá hér.
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Sjá meira