Efnahagsreikningur Kaupþings minni en áætlað Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 11. maí 2009 18:45 Ekki þykir nægilega skýrt hvernig skipta eigi erlendri og innlendri starfsemi milli gömlu og nýju bankanna.
Fjármálaeftirlitið skoðar nú hvort að tug milljarða lán eigi að vera eign gamla eða nýja Kaupþings. Verði lánin skilin eftir í gamla bankanum minnkar efnahagsreikningur bankans töluvert. Vinnu við efnahagsreikninga Íslandsbanka og Landsbankans er lokið en enn er unnið að efnahagsreikningi Kaupþings. Ekki þykir nægilega skýrt hvernig skipta eigi erlendri og innlendri starfsemi milli gömlu og nýju bankanna. Hvað eigi t.a.m. að gera við erlend eignarhaldsfélög sem eiga innlendar eignir og þau fjölmörgu félög sem eiga bæði innlendar og erlendar eignir. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Fjármálaeftirlitið enn ekki samþykkt að lánaflokkar um 10 fyrirtækja hafi verið settir á efnahagsreikning gamla Kaupþings. Skilanefndin hafði tekið ákvörðun um málið en búist er við að svar berist frá Fjármálaeftirlitinu í þessari viku. Lánaflokkarnir sem um ræðir nema tugum milljarða og er því ljóst að ef Fjármálaeftirlitið samþykkir þetta verður efnahagsreikningur nýja bankans mun minni en áður var áætlað en í skýrslu alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá síðasta hausti var gert ráð fyrir að hann yrði í kringum 700 milljarðar. Minni efnahagsreikningi fylgja kostir og gallar. T.a.m. þyrfti ríkið að leggja fram minna eigið fé en á móti kemur að bankinn verður af tekjum af lánunum en þau eru samkvæmt heimildum fréttastofu flest í skilum.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira