Algjör óvissa um útfærslu aðgerða stjórnvalda 11. maí 2009 12:08
Allt frá því að ljóst varð að skuldir íslenska ríkisins hafa aukist verulega í kjölfar bankahrunsins og munu að öllum líkindum slaga hátt upp í landsframleiðslu þessa árs við næstu áramót hefur niðurskurður í ríkisfjármálum verið yfirvofandi. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að enn ríki alger óvissa um útfærslu aðgerða stjórnvalda hvað þetta varðar. Efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrisjóðsins gerir ráð fyrir því að aðhald í ríkisfjármálum verði aukið verulega strax á næsta ári og að ríkissjóður muni ná jafnvægi árið 2012. Öllum er ljóst að til þess að það gangi eftir þarf að grípa til bæði niðurskurðar ríkisútgjalda og breikkunar á tekjustofni með auknum sköttum. Hingað til hafa þó engin svör fengist um hvaða aðgerða stjórnvöld ætla að grípa til í þessum tilgangi. Svörin við þessum spurningum munu þó liggja fyrir að 100 dögum liðnum þegar hulunni verður svipt af áætlun stjórnvalda um ríkisfjármál til millilangs tíma og forsendur fjárlaga 2010 verða afgreiddar í ríkisstjórn. Samkvæmt samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar má skilja að niðurskurði verði m.a. náð fram með kjarajöfnun opinberra starfsmanna og víðtæku sparnaðarátaki í ríkiskerfinu öllu. Þá ætla stjórnvöld að auka tekjur ríkissjóðs með því að auka skattheimtu á þá sem eru betur í stakk búnir til að bera auka byrðar og verður það líklega útfært með hátekjuskatti af einhverju tagi. Nánari útfærsla á því hvernig aðlögun ríkisrekstursins muni fara fram liggur ekki fyrir og því ríkir enn algjör óvissa um útfærslu þessara aðgerða. Það verður því gríðarlega mikilvægur og langþráður áfangi þegar áætlun stjórnvalda um ríkisfjármál verður kynnt innan 100 daga. Þá mun óvissa varðandi Icesave og hversu stór upphæð vegna þeirra fellur á ríkissjóð einnig hverfa í sumar samkvæmt 100 daga áætluninni. Það verður gríðarlega mikilvægur áfangi enda mun raunveruleg skuldastaða þjóðarinnar ekki skýrast að fullu leyti fyrr en samningar vegna Icesave eru í höfn.Mikil óvissa hefur ríkt um íslensku bankana og hvernig endurreisn þeirra verður háttað. Nýju bankarnir búa enn við að efnahagsreikningar þeirra eru enn ekki tilbúnir sem hefur tafið fyrir endurfjármögnun þeirra. Þá ríkir mikil óvissa varðandi framtíðarstöðu þeirra og eignarhald. Þetta mun þó senn skýrast ef marka má 100 daga áætlunina en samkvæmt henni mun ákvörðun varðandi eigendastefnu og framtíðareignarhald bankanna liggja fyrir að 100 dögum liðnum, sem og ákvörðun um mögulegt erlent eignarhald bankanna. Þá verður endurfjármögnun bankanna lokið innan 100 daga sem mun gera þá að fullu starfhæfa á nýjan leik.Þá ætlar ríkisstjórnin að hafa lokið endurskipulagningu sparisjóða fyrir þann 17. ágúst næstkomandi en í þeim tilgangi verður lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um sparisjóði nú strax á sumarþingi. Starfhæft og virkt fjármálakerfi er mikilvæg undirstaða í hverju hagkerfi og því er það án efa eitt mikilvægasta verkefnið framundan að ljúka endurreisn þess.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira