Ríkir Kínverjar flýja heimalandið Stefán Ó. Jónsson skrifar 15. september 2014 09:02 Flestir Kínverjanna sögðust vilja flytja til Hong Kong, eða um 30 prósent svarenda. Vísir/Getty
Tæplega helmingur kínverskra milljarðamæringa íhuga að flytja úr landinu innan næstu fimm ára í leit að betri menntunar- og atvinnutækifærum fyrir börn sín ef marka má nýja alþjóðlega könnun Barclays-bankans. Af þeim rúmlega tvö þúsund milljarðamæringum sem spurðir voru eru þeir sem búa á meginlandi Kína líklegastir til þess að flytja en 47 prósent aðspurðra sögðust íhuga að stinga af, í samanburði við 16 prósent íbúa Hong Kong. 23 prósent íbúa Singapúr segjast vilja flytja innan fimm ára og eru þeir næstlíklegastir til að láta sig hverfa en fast á hæla þeirra fylgja um 20 prósent ofurríkra Breta. Bandaríkjamenn og Indverjar eru heimakærastir samkvæmt könnunni. Algengasta ástæðan fyrir mögulegum brottflutningum var sögð vera betri tækifæri fyrir börn milljarðamæringanna (78 prósent svarenda), betra efnahagsástand (73 prósent) og betra heilbrigðiskerfi og velferð (18 prósent). Flestir Kínverjanna sögðust vilja flytja til Hong Kong, eða um 30 prósent svarenda.
Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Dagar Workplace eru taldir Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sjá meira