Formúla 1

Lowe vill sjá öruggt fyrsta og annað sæti í Singapúr

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Paddy Lowe hefur fengið nóg af drama í ár. Hann vill atvikalausar keppnir héðan í frá.
Paddy Lowe hefur fengið nóg af drama í ár. Hann vill atvikalausar keppnir héðan í frá. Vísir/Getty
Paddy Lowe, tæknistjóri Mercedes óskar þess af ökumönnum liðsins að þeir einbeit sér að því að tryggja liðinu fyrsta og annað sætið í Singapúr. Hann vill ekki sjá neitt drama.

Baráttan á milli Nico Rosberg og Lewis Hamilton, ökumanna liðsins hefur verið mikið til umfjöllunnar undanfarið. Ólíklegustu samsæriskenningar hafa sprottið upp af hinum ýmsustu tilefnum.

„Sem lið erum við gríðarlega ánægð með Monza. Þetta er ein skemmtilegasta en erfiðasta braut ársins, hvað þá að ná fyrsta og öðru sæti þar, virkilega ánægjulegt,“ sagði Lowe.

Samkvæmt Lowe væri enn gleðilegra ná fyrsta og öðru sæti ef hægt væri að sleppa fjölmiðlafárinu og samsæriskenningunum.

„Keppnin í Singapúr er alltaf full af hasar og atvikum, brautin liggur bara þannig og hitinn spilar inn í fjölda þeirra sem ná ekki að klára - bæði verða vélabilanir og mannleg mistök fleiri í hitanum. Við ætlum okkur að stýra framhjá öllu drama og ná aftur góðri niðurstöðu í upphafi loka þriðjungs tímabilsins,“ sagði Lowe að lokum.


Tengdar fréttir

Endurhæfing Schumacher færð á heimili hans

Talskona Michael Schumacher staðfesti í dag að Schumacher hefði verið fluttur af spítalanum í Lausanne á heimili sitt þar sem endurhæfingin mun halda áfram.

Lewis Hamilton vann á Monza

Lewis Hamilton vann ítalska kappaksturinn eftir að hafa ræst á ráspól en tapað forystunni í ræsingu. Liðsfélagi hans hjá Mercedes, Nico Rosberg varð annar eftir óheppileg mistök. Felipe Massa á Williams átti rólegan dag en náði í þriðja sætið.

Luca di Montezemolo hættir hjá Ferrari

Luca di Mintezemolo hefur sjálfur staðfest að hann ætli að láta af störfum sem forseti Ferrari í næsta mánuði, eftir tveggja áratuga starf.

FIA bannar frammistöðuskilaboð

FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið hefur ákveðið að banna öll frammistöðutengd skilaboð í talstöðvum liðanna til ökumanna. Bannið mun taka gildi fyrir keppnina í Singapore, næstu helgi.

Formúlu 1 keppnir 2015

Alþjóða akstursíþróttasambandið (FIA), kynnti í dag keppnisdagatal næsta árs. Keppnirnar verða 20 í heildina, keppni í Mexíkó er eina viðbótin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×