Atorka fær PwC í Danmörku til að leggja mat á eignir 7. maí 2009 16:13
Stjórn Atorku ákveðið að leita til PricewaterhouseCoopers (PwC) í Danmörku til að leggja vandað heildstætt mat á virði eignasafnsins og líklega þróun þar á næstu árin. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu. „Atorka hefur undanfarna mánuði unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í kjölfar þeirra neikvæðu áhrifa sem heimskreppan hefur haft á eignasafn þess. Atorka hefur, ólíkt mörgum öðrum íslenskum fjárfestingafélögum, nær eingöngu fjárfest í rekstrarfélögum sem flest starfa á alþjóðlegum vaxtarmörkuðum. Almennt er Atorka stærsti hluthafinn í sínum félögum með 20 - 40% eignarhlut. Atorka er þannig leiðandi í stefnumörkun og stærri ákvarðanatöku um rekstur og þróun félaganna bæði með stjórnarsetu og nánu samstarfi við stjórnendur. Ljóst er að virði bæði skráðra og óskráðra félaga í eignasafni Atorku hefur lækkað verulega síðustu mánuði þrátt fyrir að almennt sé rekstur þessara félaga vel viðunandi miðað við aðstæður á mörkuðum. Sala á eignum á þessum tímapunkti er ekki álitlegur valkostur og mikil verðmætaaukning fólgin í því að vinna markvisst með fyrirtæki Atorku næstu ár. Að beiðni lánadrottna var KPMG í London fengið til að vinna verðmat á Promens hf., sem er stærsta einstaka fjárfesting Atorku. Niðurstaða þess verðmats, þar sem nær eingöngu er horft til núverandi markaðsaðstæðna, sem litast af tímabundnum veltusamdrætti og mat fulltrúa lánadrottna á fjárfestingum Atorku, er talsvert frábrugðið mati stjórnar og stjórnenda Atorku á verðmæti eigna félagsins til lengri tíma litið. Í ljósi framangreinds og til að undirbyggja ítarlegar tillögur að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins hefur stjórn Atorku ákveðið að leita til PricewaterhouseCoopers í Danmörku til að leggja vandað heildstætt mat á virði eignasafnsins og líklega þróun þar á næstu árin. Stefnt er að því að sú vinna taki 3-4 vikur og ljúki fyrir lok maí," segir í tilkynningunni. Í kjölfarið mun Atorka kynna hugmyndir að framtíð félagsins sem miða að því að tryggja sem best stöðu lánadrottna og hluthafa félagsins.
Mest lesið Fjárfestu í karllægum félögum báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Viðskipti erlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Sjá meira