Líkur á hærri vöxtum í Bretlandi 27. júní 2007 03:15 Seðlabankastjórinn Mervyn King, breska seðlabankastjóranum, varð ekki að ósk sinni um hækkun stýrivaxta fyrr í mánuðinum. Fréttablaðið/AFP
Skoðanir voru skiptar innan peningamálanefndar Englandsbanka að halda stýrivöxtum óbreyttum í byrjun mánaðar. Fimm nefndarmenn voru fylgjandi því að halda vöxtunum óbreyttum í 5,5 prósentum en fjórir studdu hækkun upp á 25 punkta. Á meðal þeirra sem mæltu fyrir hækkun var Mervyn King, seðlabankastjóri Bretlands, en hann hefur verið undir miklum þrýstingi síðustu mánuði að hækka stýrivexti til að kveða breska verðbólgudrauginn niður. Þetta mun vera í annað sinn frá því King tók við stóli bankastjóra Englandsbanka sem hann lýtur í lægra haldi á fundi peningamálanefndarinnar. Verðbólga mældist 3,1 prósent í mars og greip bankinn strax til aðgerða. Skilaði það sér í því að verðbólga mælist nú 2,5 prósent, sem þó er nokkuð yfir 2,0 prósenta verðbólgumarkmiðum Englandsbanka. Breskir greinendur segja það hafa komið mjög á óvart hversu mjótt var á munum og telja auknar líkur á stýrivaxtahækkun í Bretlandi í bráð.
Viðskipti Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira