Lánafyrirtæki fara líklegast á hausinn 13. febrúar 2010 18:41
Viðbúið er að einhver lánafyrirtæki verði gjaldþrota komist hæstiréttur að sömu niðurstöðu og héraðsdómur Reykavíkur. Hagfræðingur telur líklegt að bankarnir þurfi að afskrifa milljarða. Lánastofnanir neyðast til að afskrifa stórar upphæðir fallist Hæstiréttur á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir að þá verði það kröfuhafar bankanna, eigendur eignaleigufyrirtækjanna, sem verða bera skellinn af því en ekki ríkið. „Það er ekki almeningur í landinu sem mun bera kostnað af því heldur þeir sem til þessara lána stofnuðu og það væri þá eðlilegi niðurstaða." En getur bankakerfið tekið sig slíkan skell? „Ég held að það verði engin vandi því samfara að takast á við það ef þessi lán reynast ekki eiga sér forsendur," segir Árni. „Það kann að vera að í einhverjum tilvikum séu þessi lán það stór hluti af starfsemi fyrirtækjanna að þau lifi það ekki af en það eru þá ekki fyrstu fyrirtækin sem fara á hausinn vegna þess að þau búa við fallnar forsendur í þessu landi." Guðmundur Ólafsson, hagfræðingur, telur að besta leiðin væri að breyta myntkörfulánum í hefðbundin krónulán. „Þá reikna ég með því að þetta yrði ekki verulegt tjón," segir Guðmundur og telur að tjónið verði talið í milljörðum en ekki tugum milljarða. Bankarnir geta hins vegar ekki afskrifað lánin að fullu segir Guðmundur. „En ef það mundi gerast að bankarnir þurfi að bera allt þetta sjálfir þá hefur einn útibúisstjóri sagt við mig að þá kæmi bara nýtt bankahrun. Það er kannski allt í lagi, við erum orðnir vanir því að takast á við það," segir Guðmundur Ólafsson.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira