Innlent

Svona var 32. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn stýrir fundinum.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn stýrir fundinum. Vísir/Vilhelm

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14. Fundurinn verður í beinni útsendingu og textalýsingu á Vísi. Þá verður hann sýndur á rás 5 á kerfum Vodafone og sömuleiðis á rás 11 á kerfum Símans.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, verður einnig á fundinum í dag.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, verður gestur fundarins í dag. Mikið álag er á stofnuninni um þessar mundir og mun hún koma upplýsingum áleiðis um helstu verkefni og áskoranir.

Uppfært: Hér að neðan má sjá upptöku af fundinum í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×