Gera fæðinguna eitthvað til að hlakka til Álfrún Pálsdóttir skrifar 29. ágúst 2014 23:00 Guðrún Darshan segir meðgöngujóga meðal annars gera fæðinguna að einhverju til að hlakka til frekar en að kvíða. Fréttablaðið/Anton
Jóga-og heilsustöðin Andartak ætlar í fyrsta sinn á Íslandi að standa fyrir kennaranámi í meðgöngujóga. Guðrún Darshan er einn af kennurunum en hún segir námið byggt upp sem ferðalag móðurinnar, sem hefst við getnað og lýkur 40 dögum eftir fæðingu. "Jóga er orðið venjulegt hugtak á Íslandi sem er ánægjulegt. Flestir hafa stundað, eða þekkja einhvern sem stundar, jóga,“ segir Guðrún Darshan jógakennari en í fyrsta sinn á Íslandi ætlar Jóga- og heilsustöðin Andartak að bjóða upp á kennaranám í meðgöngujóga. Meðgöngujóga er vinsælt meðal barnshafandi kvenna en námskeiðið verður byggt upp sem ferðalag móðurinnar, frá getnaði til 40 dögum eftir fæðingu. „Verið er að kenna konum að tengja við líkama sinn, vera meðvitaðar um eigin styrk og nota hann í fæðingunni. Fara inn í sársaukann og anda. Einnig erum við að fjalla um manneskjuna í tengslum við þetta andlega ferðalag í kringum barnsburð. Eins og til dæmis samskipti kynjanna sem er mikilvægt og að finna kyrrðina,“ segir Guðrún og segir jóga öfluga leið til að undirbúa konu fyrir fæðinguna sjálfa. „Eitt af markmiðum með meðgöngujóga er að gera fæðinguna að einhverju til að hlakka til frekar en að kvíða.“ Námskeiðin eru fyrst og fremst ætluð til að undirbúa nemendur með þekkingu og tækni sem auðveldar þeim að kenna barnshafandi konum kundalini-jóga og hugleiðslu. Guðrún segist finna fyrir miklum áhuga á náminu en jóga og hugleiðsla á meðgöngu getur haft áhrif á móður sem barn. „Ég vil meina að jóga sé einnig hollt til að byggja mæður upp andlega í kringum barnsburð en rannsóknir sýna að jóga getur líka haft áhrif á barnið, og tengsl móður og barns. Margar konur glíma til dæmis við lágt sjálfsmat meðan á meðgöngu stendur og jóga og hugleiðsla getur hjálpað við það. Það má því segja að jóga sé grunnur að betra samfélagi.“
Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Menning Fleiri fréttir Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Sjá meira