Segir að Zlatan Ibrahimovic hafi hótað að drepa þann sem vogaði sér að tala við hann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2020 13:30 Los Angeles Galaxy v Los Angeles FC - Western Conference Semifinals LOS ANGELES, CA - OCTOBER 24: Zlatan Ibrahimovic #9 of Los Angeles Galaxy during the MLS Western Conference Semi-final between Los Angeles FC and Los Angeles Galaxy at the Banc of California Stadium on October 24, 2019 in Los Angeles, California. Los Angeles FC won the match 5-3 (Photo by Shaun Clark/Getty Images)
Zlatan Ibrahimovic montaði sig af ríkidæmi sínu, af eyjunni sinni og 43 milljörðum inn á bankabókinni, þegar hann ræddi við liðsfélaga sína hjá Los Angeles Galaxy. Hann gekk líka enn lengra í hroka og yfirlýsingum í búningsklefa bandaríska liðsins. Joao Pedro, fyrrum liðsfélagi Svíans Zlatan Ibrahimovic hjá Los Angeles Galaxy, hefur nú sagt frá miklu reiðikasti Svíans í búningsklefa bandaríska liðsins í október 2018. Zlatan Ibrahimovic missti algjörlega þolinmæðina fyrir liðsfélögum sínum í Los Angeles Galaxy eftir að liðið missti niður 2-0 forystu og tapaði 3-2 á móti Houston Dynamo á lokadegi tímabilsins. Tapið þýddi að Galaxy liðið endaði tímabilið í þrettánda sæti. Joao Pedro er 27 ára portúgalskur miðjumaður sem sagði frá þessu skrýtna kvöldi í viðtali við Record. Zlatan Ibrahimovic boasted about his wealth and 'threatened to KILL anyone who talked to him' in extraordinary rant after a defeat, reveals former LA Galaxy team-mate Joao Pedro https://t.co/pWXFwBvq7l— MailOnline Sport (@MailSport) April 19, 2020 „Hann hraunaði yfir okkur eftir leikinn. Hann sagði: Ef þið ætlið að koma hingað til að vera á ströndinni eða labba í Hollywood, segið það bara,“ rifjaði Pedro upp. „Hann sagði líka að hann væri með 300 milljónir (dollara) inn á bankabók, ætti einkaeyju og þurfti ekkert á þessu að halda,“ sagði Pedro en Zlatan var líka með hótanir: „Hann sagði: Sá fyrsti sem segir eitthvað við mig: Ég mun drepa hann,“ sagði Pedro. Zlatan Ibrahimovic spilaði eitt tímabil til viðbót með Los Angeles Galaxy en náði ekki að vinna titil með félaginu eins og með öllum öðrum liðum sínum. 30 mörk í 29 leikjum á lokaárinu dugðu ekki til.
Fótbolti Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Á sársaukafullar minningar af HM Uppgjör: FH komið á toppinn Uppgjörið: Sterk viðbrögð Grindavíkur/Njarðvíkur skiluðu mikilvægum sigri Stemningin á Times Square engri lík Góður sigur Stjörnunnar á meisturunum Uppgjör: Markalaust jafntefli þrátt fyrir fjörugan leik Stórsigur í Stokkhómsslagnum Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Verður ekki með í fyrsta leik á HM Sjá meira