Rafíþróttir

Bein útsending: Þriðji dagur Stöð 2 eSport

Tinni Sveinsson skrifar
Rafíþróttir á Íslandi hafa eignast nýtt heimili á Stöð 2 eSport.
Rafíþróttir á Íslandi hafa eignast nýtt heimili á Stöð 2 eSport.

Útsendingar á nýrri sjónvarpsstöð, Stöð 2 eSport hófust á föstudag klukkan 16.

Þær halda áfram í dag og byrjuðu í raun í morgun. Meðal annars verður sýnt úrslitakvöld KARDS, og úrslit í League of Legends og Counter Strike í Lenovo-deildinni í fyrra.

Íslenska rafíþróttadeildin, sem nú ber heitið Vodafone-deildin, rúllar síðan aftur af stað á miðvikudag. Þá verður fyrsta beina útsendingin frá nýrri leiktíð þegar Fylkir og Þór Akureyri keppa í Counter-Strike.

Vonir standa jafnframt til þess að hægt verði að senda út frá leikjum landsliðs Íslands í Pro Evolution Soccer á mánudaginn.

Stöð 2 eSport er í opinni dagskrá á Vísi alla helgina. Hægt er að horfa á stöðina í spilaranum hér fyrir neðan.

Dagskráin í dag

13:10 - 14:05 RIG2020 - CSGO Finals - Leikur 5

Útsending frá leik 5 af 5 í úrslitum Counter Strike á Reykjavíkurleikunum þar sem Fylkir mætti TDL Vodafone.

14:05 - 17:20 KARDS World Championship Finals

Útsending frá úrslitakvöldi KARDS World Championship. KARDS er íslenskur spilaleikur framleiddur af 1939 Games sem settur er í seinni heimstyrjöldinni.

17:20 - 17:35 Lenovo deildin - Úrslit í Counter Strike

Útsending frá úrslitum í Counter Strike á 2. keppnistímabili Lenovo-deildarinnar þar sem Dusty mætti Seven í Háskólabíó.

17:35 - 21:55 Lenovo deildin - Úrslit í League of Legends

21:55 - 22:20 Lenovo deildin - Úrslit í League of Legends

Útsending frá úrslitum í League of Legends á 1. keppnistímabili Lenovo-deildarinnar þar sem Dusty mætti FH í Háskólabíó.

22:20 - 00:30 Lenovo deildin - Úrslit í Counter Strike

Útsending frá úrslitum í Counter Strike á 1. keppnistímabili Lenovo-deildarinnar þar sem HaFið mætti Fylki í Háskólabíó.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×