Gagnkvæm virðing, vænlegust til vinnings Gunndís Eva Baldursdóttir skrifar 21. mars 2020 17:15 Háskóli Íslands gerir margvíslegar kröfur til nemenda. Þeim eru kynntar skólareglur í upphafi náms og í byrjun námskeiðs er farið yfir kröfur sem gerðar eru til námsframvindu og fleira. Þá erum við einnig upplýst um afleiðingar vanrækslu í náminu. Ef nemendur standa ekki skil á verkefnum á réttum tíma, missa af prófi eða fyrirlestri eða taka ekki þátt í umræðum geta þeir átt á hættu að fá lægri einkunn eða falla á prófi. Á Hugvísindasviði býðst nemendum ekki að þreyta upptökupróf, ef þeir sjá sér ekki fært að mæta í lokapróf eða falla í því. Þá þarf að taka áfangann upp aftur í heild sinni. Þetta fyrirkomulag er þvert á reglur skólans, en þar er tekið fram að nemandi hafi rétt til að taka próf í hverjum áfanga tvisvar sinnum áður en hann þarf að taka hann upp aftur. Þessu ber hugvísindasviði að breyta sem fyrst. Ef Háskóli Íslands ætlar sér að uppfylla HÍ21 stefnuna er þetta ekki einungis hrein mismunun milli nemenda heldur brot á reglum skólans. Reglur eru mikilvægur hluti samfélagsins og án þeirra væri glundroði. Mikilvægt er að hafa í huga að lög og reglur gilda fyrir alla. Háskólanum ber að sýna nemendum sömu virðingu og skólinn ætlast til að þeir sýni í námi og samskiptum innan skólans. Í reglum Háskóla Íslands er skýrt tekið fram hversu langan frest kennarar hafa til að skila úrlausnum verkefna og prófa en því miður eru mörg dæmi um að kennarar virði ekki þessar reglur. Einkunnum er skilað seint og oftar en ekki er skortur á endurgjöf. Þetta veldur nemendum miklum óþægindum enda mikilvægt að vita hvernig maður stendur í náminu og hvar sé rúm til bóta jafnt og þétt yfir önnina. Kennarar Háskóla Íslands þurfa að vera meðvitaðir um hve mikið vinnuálag þeir telja sig ráða við og skipuleggja verkefnafjölda hvers áfanga í takt við það. Gagnkvæm virðing er vænlegust til vinnings. Ég skora á stjórnendur skólans að líta í eigin barm og fara eftir reglum sem þau settu sér sjálf áður en þau krefja nemendur um að sitja þegjandi og hljóðlaust á meðan brotið er á þeirra rétti. Höfundur er nemi í sagnfræði og skipar 1. sæti á lista Vöku á hugvísindasviði fyrir stúdentaráðskosningar Háskóla Íslands 2020. Mutual respect is key The University of Iceland has many diverse demands towards their students. They are introduced to the school’s regulations and at the beginning of courses the demands of the course are made clear to the students. We are also informed about the consequences of negligence in our studies. If students don’t hand in assignments at the right time, miss tests or a lecture or simply don’t take part in the discussions in class they could risk getting a lower grade or failing a test. In the School of Humanities students are not allowed to take repeat examination if they are unable to attend the final exam or simply fail it. Students have to retake the whole course. This arrangement is contrary to the rules of the school, but there it is stated that a student has the right to take an exam in each course twice before he has to retake the course. The School of Humanities needs to change this as soon as possible. If the University of Iceland wants to fulfil the HÍ21 policy this is not only clear discrimination between students but a violation of the schools rules. Rules are an important part of society and without them there would be chaos. It is important to keep in mind that law and rules apply to everybody. The University must show students the same respect as the school expects students to show in their studies and communication inside the school. The rules of the University of Iceland clearly state how long teachers have to hand in grades for exams and tests but there are many examples where teachers do not respect these rules. Grades are often handed in late and many times there is no feedback. This causes a great deal of discomfort for students because it is important to know where you stand in your studies and where there is room for improvement over the school term. Teachers at the University of Iceland need to be aware of the workload they think they can manage and organize the amount of assignments in regards to that. Mutual respect is key. I challenge the leaders of the School to look inward and follow their own rules before they demand students to sit silently and without a sound while their rights are not being met. Gunndís is studying history and is in 1st place on Vaka’s list on the School of Humanities for the student council elections at the University of Iceland 2020. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar