Sport

Hræðileg vika Haskins endaði með atvinnuleysi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dwayne Haskins Jr. var kominn á bekkinn og nú hefur hann misst vinnuna.
Dwayne Haskins Jr. var kominn á bekkinn og nú hefur hann misst vinnuna. Getty/Will Newton

Dwayne Haskins er ekki lengur leikmaður Washington Football Team eftir að NFL félagið ákvað að segja uppi samningi hans.

Það er óhætt að segja að leikmenn geti ekki átt mikið verri vikur en NFL-leikmaðurinn Dwayne Haskins átti síðustu daga.

Það fór hreinlega úr illu í verra í enn verra hjá þessum 23 ára gamla leikmanni.

Vandræðin byrjuðu þegar Dwayne Haskins braut sóttvarnarreglur. Hann var myndaður grímulaus í partýi.

Haskins fékk í kjölfarið 40 þúsund dollara sekt eða sekt upp á fimm milljón íslenskra krónur. Hasking missti einnig fyrirliðastöðu sína hjá Washington Football Team.

Í leik liðsins um helgina þá spilaði Dwayne Haskins það illa að hann var settur á bekkinn í miðjum leik sem er stór ákvörðun þegar kemur að leikstjórnendum í ameríska fótboltanum.

Eftir leikinn tilkynnti þjálfari Washington Football Team að Haskins myndi ekki byrja í næsta leik og vikan endaði síðan á því að félagið sagði upp samningi leikmannsins.

Washington Football Team eyddi fimmtánda valrétti í Dwayne Haskins árið 2019 og hann átti að verða framtíðarleikstjórnandi liðsins.

Það hefur ekki gengið eftir. Dwayne Haskins hefur kastað boltanum oftar frá sér (14) en hann hefur gefið snertimarkssendingar (12) og liðið hefur aðeins unnið þrjá af þrettán leikjum hans í byrjunarliðinu.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×