Viðskipti erlent

Apple sagt stefna á framleiðslu rafbíla árið 2024

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Tim Cook er forstjóri Apple.
Tim Cook er forstjóri Apple. Getty/Justin Sullivan

Bandaríski tæknirisinn Apple er sagður stefna á að hefja framleiðslu sjálfkeyrandi rafbíla árið 2024.

Reuters greinir frá og hefur eftir heimildarmönnum sem sagðir eru í frétt Reuters þekkja vel til áætlana Apple, sem hingað til hefur einbeitt sér að raftækjum á borð við síma og tölvur.

Verkefnið nefnist Project Titan og hefur í raun verið í vinnslu frá árinu 2014, þegar vinna við að hanna bíl hófst innan veggja Apple. Framvinda verkefnisins hefur þó verið stopul, þangað til Apple réði Doug Field árið 2018, mann sem starfaði lengi hjá Apple áður en hann fór yfir til bílaframleiðandans Tesla, áður en hann sneri aftur til apple.

Í frétt Reuters segir að skriður hafi komist á verkefnið eftir það og að nú sé staðan þannig að innan Apple telji menn gerlegt að hefja framleiðslu á sjálfkeyrandi rafmagnsbíl árið 2024 fyrir almennan markað. Í fréttinni kemur einnig fram að miðpunktur verkefnisins sé ný hönnun Apple á batteríum sem sögð er lækka framleiðslukostnað á sama tíma og drægnin eykst.

Heimildarmenn Reuters benda þó á að svo gæti farið að Apple dragi úr verkefninu á seinni stigum, og einbeiti sér frekar að því að hanna hugbúnað sem muni passa í sjálfkeyrandi bíla frá hefðbundnari bílaframleiðendum.

 Verkefni sé þó komið á það stig að Apple sé að leita sér að framleiðendum til þess að framleiða ýmis konar íhluti í bílana.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×