Enn og aftur kom Benzema Real til bjargar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Frakkinn magnaði heldur áfram að skora sigurmörk Real á ögurstundu.
Frakkinn magnaði heldur áfram að skora sigurmörk Real á ögurstundu. Denis Doyle/Getty Images)

Real Madrid jafnaði Atletico Madrid og Real Sociedad að stigum er ríkjandi meistararnir unnu 3-1 sigur á Athletic Bilbao í kvöld.

Það byrjaði ekki vel fyrir gestina frá Bilbao. Raul Garcia fékk tvö gul spjöld á fyrstu þrettán mínútum leiksins og var sendur í bað.

Það var í uppbótartíma fyrri hálfleiks sem Toni Kroos kom Real yfir en eftir laglegan sprett og samleik jafnaði Ander Capa metin á 72. mínútu.

Þá var komið að Frakkanum, Karim Benzema. Hann skallaði fyrirgjöf Daniel Carvajal í netið á 74. mínútu og á 93. mínútu innsiglaði hann svo sigurinn eftir stoðsendingu Luka Modric.

Real, er eins og áður segir, jafnt Atletico Madrid og Sociedad á toppnum með 26 stig en Atletico á tvo leiki til góða. Bilbao er í 13. sætinu með fjórtán stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira