Matur

Ó­mót­stæði­legur tólf tíma grafinn lax með sinneps­dressingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Anna Björk fer vel og vandlega yfir það hvernig maður reiðir fram grafinn lax.
Anna Björk fer vel og vandlega yfir það hvernig maður reiðir fram grafinn lax.

Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin.

Allt frá klassískum uppstúf, sykurbrúnuðum kartöflum og gljáa á hrygginn yfir í nýjar hugmyndir, líkt og vegan lausnir, Ketó jól, 12 tíma graflax og fleira.

Áherslan er sett á stóru smáatriðin sem fullkomna matinn um hátíðirnar.

Í sjötta þættinum fer Anna Björk ítarlega í gegnum það hvernig maður reiðir fram grafinn lax með sinnepsdressingu. Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.

Klippa: Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin.

Hér að neðan má finna uppskriftina sjálfa. Hún er hugsuð fyrir um tíu manns og sem forréttur.

Grafinn lax með sinnepsdressingu

Grafinn lax:

  • Laxaflak, ca. 1 kg.
  • 3 msk. sinnepskorn
  • 3 msk. kóríander fræ
  • 100 gr. hrásykur
  • 2 msk. sjávaralt flögur
  • 1-1/2 msk. dill fræ
  • 2 msk. eplaedik

Laxaflakið er beinhreinsað og snyrt til. Sinnepskorn og kóríander fræ eru ristuð á þurri pönnu þar til þau eru ilmandi, kæld. Salti og sykri er blandað saman og jafnað yfir laxaflakið, ásamt ristaða kryddinu og dill fræunum, í lokin er edikinu dreypt yfir. Plastfilma er breidd yfir laxinn og hann látinn grafast í 12 tíma upp í 24 tíma í ísskáp. Þegar þú berð hann á borðið, er mest af kryddinu skafið af flakinu og hann skorinn í mjög þunnar sneiðar, best að nota hníf með löngu sveigjanlegu blaði. Laxasneiðunum er raðað fallega á fat eða disk og borið fram með grófu kjarnarúgbrauði eða súrdeigsbrauði, mjúku smjöri og Jóla sinnepi

Jóla sinnep:

  • 1-2 meðalstórar krukkur
  • 100 gr. sætt sinnep
  • 400 gr. Dijon sinnep
  • 2 msk. Colmans sinnep
  • 150 - 200 gr. púðursykur
  • 1/2 msk. eplaedik
  • 1/2 tsk. malaður negull
  • 1 1/2 msk. kanell
  • 1 tsk. salt
  • 1 cl Jóla ákavíti

Öllu blandað saman í pott og látið malla við lágan hita í 20 mín., kryddað og smakkað til. Sett í fallega krukku og kælt.


Tengdar fréttir

Hin fullkomna kalkúnafylling á jólunum

Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin.

Eftirrétturinn fyrir ketófólkið um jólin

Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin.

Lykilatriðin á bak við sykurbrúnaðar kartöflur

Í þáttunum Lífið er ljúffengt á Vísi og Stöð 2 Maraþon deila nokkrir af helstu ástríðukokkum landsins litlum sem stórum ráðleggingum varðandi matargerð fyrir jólin. Allt frá klassískum uppstúf, sykurbrúnuðum kartöflum og gljáa á hrygginn yfir í nýjar hugmyndir, líkt og vegan lausnir, Ketó jól, 12 tíma graflax og fleira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×