Matur

Jólapavlovur með ferskum berjum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þættirnir Jólaboð Evu eru sýndir á Stöð 2 kl.19.05 á sunnudögum.
Þættirnir Jólaboð Evu eru sýndir á Stöð 2 kl.19.05 á sunnudögum. Samsett mynd

Í Jólaboð Evu í síðustu viku eldaði Eva Laufey Kjaran nauta Carpaccio og kalkúnabringur með öllu. Einnig útbjó hún ristaðar möndlur, Créme Brulée og Pavlovur. Allar uppskriftirnar munu birtast hér á Vísi en þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 alla sunnudaga fram að jólum.

Hér fyrir neðan má finna uppskriftina að jólapavlovum.

Marensbotnarnir

  • 6 eggjahvítur
  • 300 g sykur
  • 1 ½ tsk mataredik
  • 1 tsk vanilludropar
  • Salt á hnífsoddi

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 100°C og ég stilli á blástur.
  2. Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marensinn er orðinn stífur.
  3. Skiptið marensblöndunni niður í nokkur hreiður og það má líka búa til eina stóra köku. Fer bara eftir smekk hvers og eins.
  4. Bakið kökurnar við 100°C í 90 mínútur. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið kökurnar kólna alveg og best ef þær fá að kólna í ofninum yfir nótt.
Jólapavlovur eru einstaklega fallegar á veisluborðinu.Eva Laufey

Toblerone rjómi

  • 500 ml rjómi
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 msk flórsykur
  • 100 g toblerone súkkulaðisósa. Uppskrift má finna hér að neðan + meiri til þess að skreyta kökurnar í lokin. Gott að gera tvöfalda uppskrift að súkkulaðisósunni!
  • 60 g toblerone súkkulaði
  • Fersk ber til skrauts

Aðferð:

  1. Setjið súkkulaðisósu, mikilvægt að hún sé orðin köld og rjóma saman í hrærivél ásamt vanilludropum og flórsykri. Þeytið saman þar til súkkulaðirjóminn er orðinn stífþeyttur.
  2. Saxið niður toblerone súkkulaðið og bætið út í rjómakremið.
  3. Fyllið marengskökurnar með súkkulaðirjómanum og skreytið með ferskum berjum. Það er agalega gott að gera meira af súkkulaðisósunni og hella yfir kökurnar í lokin, það setur punktinn yfir i-ið.

Toblerone súkkulaðisósa

  • 200 g Toblerone súkkulaði
  • 2 – 3 msk rjómi

Aðferð:

  1. Saxið niður súkkulaðið. Bræðið súkkulaði í rjóma við vægan hita, byrjið á því að setja 2 matskeiðar af rjóma og ef ykkur finnst sósan of þykk þá bætið þið meiri rjóma saman við.
  2. Kælið alveg áður en þið notið sósuna í rjómakremið.

Tengdar fréttir

Nauta Carpaccio með piparrótarsósu

Í Jólaboð Evu um helgina eldaði Eva Laufey Kjaran nauta Carpaccio og kalkúnabringur með öllu. Einnig útbjó hún ristaðar möndlur, Créme Brulée og Pavlovur. Allar uppskriftirnar munu birtast hér á Vísi en þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 alla sunnudaga fram að jólum.

Jólaboð Evu: Kalkúnabringur með öllu tilheyrandi

Í Jólaboð Evu um helgina eldaði Eva Laufey Kjaran kalkúnabringur með öllu. Einnig útbjó hún ristaðar möndlur, Créme Brulée og Pavlovur. Allar uppskriftirnar munu birtast hér á Vísi en þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 alla sunnudaga fram að jólum.

Jólaboð Evu: Ristaðar möndlur fyrir hátíðarnar

Í Jólaboð Evu um helgina eldaði Eva Laufey Kjaran kalkúnabringur með öllu. Einnig útbjó hún ristaðar möndlur, Créme Brulée og Pavlovur. Allar uppskriftirnar munu birtast hér á Vísi en þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 alla sunnudaga fram að jólum.

Créme Brulée að hætti Evu Laufeyjar

Í Jólaboð Evu um helgina eldaði Eva Laufey Kjaran kalkúnabringur með meðlæti. Einnig útbjó hún ristaðar möndlur, Créme Brulée og Pavlovur. Allar uppskriftirnar munu birtast hér á Vísi en þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 alla sunnudaga fram að jólum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×