Handbolti

Segir að æfinga- og keppnisleysið hér á landi setji strik í reikning landsliðsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson býst ekki við að fá leikmenn íslenska landsliðsins til æfinga fyrir HM fyrr en 2. janúar 2021.
Guðmundur Guðmundsson býst ekki við að fá leikmenn íslenska landsliðsins til æfinga fyrir HM fyrr en 2. janúar 2021. vísir/vilhelm

Þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta segir að æfinga- og keppnisleysi síðustu vikna hér á landi setji strik í reikninginn fyrir HM. Hann vill þó ekki gefa það út hvort leikmenn sem spila hér heima eigi minni möguleika en aðrir að komast í HM-hópinn.

Af þeim 35 leikmönnum sem Guðmundur Guðmundsson valdi í stóra hópinn fyrir HM í Egyptalandi í byrjun næsta árs leika átta hér á landi. Miklar skorður hafa verið settar á íþróttastarf á Íslandi á undanförnum vikum vegna kórónuveirufaraldursins og fyrst í gær máttu lið byrja að æfa á ný eftir tveggja mánaða hlé.

Útséð er með að keppni í Olís-deild karla hefjist fyrir áramót og því munu leikmennirnir hér heima ekki hafa spilað leik í þrjá mánuði þegar kemur að HM.

„Það er eitthvað sem ég verð að skoða þegar ég er að velja liðið, það er bara þannig. Þetta hefur verið þannig á Íslandi að menn hafa ekki haft tækifæri til að æfa. Þetta er held ég eina landið í Evrópu þar sem þessu hefur verið svona hagað. Þá er ég að tala um afreksíþróttafólk. Þetta hefur sett mjög stórt strik í reikninginn verð ég að segja,“ sagði Guðmundur í samtali við Vísi í gær.

„Ég verð bara að meta það hvernig þeir geta bætt sitt líkamlega ástand á síðustu dögum, fram að áramótum.“

Guðmundur vildi ekki taka svo sterkt til orða að leikmennirnir sem leika hér á landi stæðu verr að vígi en aðrir þegar hann velur lokahópinn fyrir HM.

Slæm staða í íslensku íþróttalífi

„Ég ætla ekki að nota þau orð en við getum kannski sagt að þegar ég er að velja á milli tveggja leikmanna gæti verið að þetta hefði áhrif. En ég er ekki tilbúinn að segja af eða á með það,“ sagði Guðmundur.

„Ég vil ekki tjá mig mikið á þessu stigi en ég er bara að skoða heildarmyndina og þetta hefur náttúrulega verið afskaplega slæm staða í íslensku íþróttalífi.“

Guðmundur á ekki von á því að íslenski hópurinn komi saman til æfinga fyrir HM fyrr en 2. janúar 2021.

„Ég var að vonast til að við gætum komið saman milli jóla og nýárs en það lítur því miður ekki vel út. Mér sýnist að við fáum enga undanþágu til þess og það er auðvitað mjög slæmt,“ sagði Guðmundur.

Þrír leikir við sama liðið á viku

Ísland leikur tvo leiki við Portúgal, heima og að heiman, áður en haldið verður til Egyptalands. Fyrsti leikur Íslendinga á HM er svo gegn Portúgal 14. janúar. Íslendingar og Portúgalir mætast því þrisvar á einni viku og það í þremur löndum.

„Það vitum við fyrst eftir leikina,“ sagði Guðmundur aðspurður hvort það væri gott eða slæmt að fá leiki, alvöru keppnisleiki, svona skömmu fyrir HM, og það gegn andstæðingi Íslands á mótinu.

„Mér finnst þetta mjög erfið tímasetning. Bæði þessi ferðalög á þessum tíma og spila við tvo mjög erfiða leiki við lið áður en við mætum þeim aftur á HM. Það er mjög sérstakt.“

Knappur tími

Guðmundur á von á því að velja 20-21 leikmann í æfingahóp og fara svo með tuttugu leikmenn til Egyptalands.

„Ég reikna með að æfingahópurinn telji tuttugu leikmenn, mesta lagi 21. Hann verður ekkert mikið stærri út af tímaleysi ef við byrjum ekki fyrr en 2. janúar. Tíminn til æfinga er mjög takmarkaður og þá þarf ég nánast að vera búinn að velja þann hóp, meira eða minna. Það er hausverkurinn sem ég glími við núna, að taka ákvörðun hvernig þetta lítur endanlega út,“ sagði Guðmundur.

Auk Íslands og Portúgals eru Alsír og Marokkó í F-riðli á HM. Þrjú efstu liðin komast áfram í milliriðla.

Stóri HM-hópurinn

  • Alexander Petersson - Rhein-Necker Löwen
  • Arnar Freyr Arnarsson - Melsungen

  • Arnór Þór Gunnarsson - Bergischer

  • Aron Pálmarsson - Barcelona

  • Atli Ævar Ingólfsson - Selfoss

  • Ágúst Elí Björgvinsson - KIF Kolding

  • Bjarki Már Elísson - Lemgo

  • Björgvin Páll Gústavsson - Haukar

  • Daníel Freyr Andrésson - GUIF

  • Daníel Þór Ingason - Ribe Esbjerg

  • Elliði Snær Viðarsson - Gummersbach

  • Elvar Ásgeirsson - Stuttgart

  • Elvar Örn Jónsson - Skjern

  • Gísli Þorgeir Kristjánsson - Magdeburg

  • Grétar Ari Guðjónsson - Cavial Nice

  • Guðmundur Árni Ólafsson - Afturelding

  • Guðmundur Hólmar Helgason - Selfoss

  • Gunnar Steinn Jónsson - Ribe Esbjerg

  • Hákon Daði Styrmisson - ÍBV

  • Janus Daði Smárason - Göppingen

  • Kári Kristján Kristjánsson - ÍBV

  • Kristján Örn Kristjánsson - Pays d'Aix

  • Magnús Óli Magnússon - Valur

  • Oddur Grétarsson - Balingen-Weilstetten

  • Orri Freyr Þorkelsson - Haukar

  • Óðinn Þór Ríkharðsson - TTH Holstebro

  • Ólafur Andrés Guðmundsson - Kristianstad

  • Ómar Ingi Magnússon - Magdeburg

  • Óskar Ólafsson - Drammen

  • Sigvaldi Björn Guðjónsson - Vive Tauron Kielce

  • Sveinn Jóhannsson - SönderjyskE

  • Teitur Örn Einarsson - Kristianstad

  • Viggó Kristjánsson - Stuttgart

  • Viktor Gísli Hallgrímsson - GOG Håndball

  • Ýmir Örn Gíslason - Rhein-Neckar Löwen




Fleiri fréttir

Sjá meira


×