Atvinnulíf

Mælingar fjarvinnu í Covid: Afköst aukast en ekki vöðvabólga

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Tómas Bjarnason.
Tómas Bjarnason. Vísir/Vilhelm

„Eitt af því sem að við héldum að myndi gerast núna í nóvember, væri að vöðvabólga og bakverkir myndu aukast, þar sem fólk væri í meira mæli að vinna heima og sumir hugsanlega ekki við kjöraðstæður. En við erum hvorki að sjá aukningu á bakverkjum eða vöðvabólgu frá því í apríl,“ segir Tómas Bjarnason sviðsstjóri mannauðsrannsókna og ráðgjafar Gallup.

 Tómas segir að almennt séu litlar breytingar á niðurstöðum könnunar nú í samanburði við í október. „Áhugavert er þó að sjá að samtals hefur þeim fjölgað um 13% sem segja að „félagsleg einangrun“ sé „mikil áskorun“ frá því í júní. Þeim fjölgaði um 5% milli júní og október og svo um 8% milli október og nóvember“ segir Tómas.

Í dag og á morgun rýnir Atvinnulífið á Vísi í fjarvinnu miðað við stöðuna nú í lok árs. Nýjar tölur frá Gallup eru birtar í dag en á morgun verður fjallað um hvaða breytingar fjarvinna hefur kallað á í starfi stjórnenda.

Áskoranir, afköst og áhugi helst í hendur

„Stundum sjáum við bara hluti sem eru mjög lógískir, en það getur verið gott að sjá þetta svona skýrt í gögnunum: 

Ef fólk finnur fyrir miklum áskorunum í fjarvinnu, þá er áhugi þeirra á fjarvinnu minni. 

Þá helst einnig í hendur að ef fólk finnur fyrir miklum áskorunum í fjarvinnu, finnst því einnig að afköst þeirra séu verri í fjarvinnu en á vinnustaðnum,“ segir Tómas og bætir við 

Og þeir sem telja afköst sín verri en á vinnustaðnum hafa líka mikið minni áhuga á að halda áfram að vinna fjarvinnu en þeir sem telja afköst sín betri eða svipuð og á vinnustaðnum.“ 

Afköst aukast með fjölda daga í fjarvinnu

„Þá er áhugavert að sjá sama mynstur í gögnunum núna og í júní; að eftir því sem dögum í fjarvinnu fjölgar, því meiri segir fólk að afköstin séu i fjarvinnu: 

Ríflega fjórðungur þeirra sem unnu 6-10 daga í fjarvinnu á síðustu tíu dögum, telur afköst sín betri en á vinnustaðnum, en hlutfallið er helmingi lægra hjá þeim sem unnu færri en 6 daga á síðustu tíu dögum,“ segir Tómas og bætir við:

 Við höldum að þarna geti verið tvennt á ferðinni. Ein skýring er að þeir sem vinna meiri fjarvinnu séu í störfum sem henta betur í fjarvinnu en hinir sem vinna færri daga. Önnur skýring er að þeir sem vinna meiri fjarvinnu séu betur undirbúnir og betur studdir af vinnustaðnum en hinir.“ 

Þróun í Covid

Hér má sjá niðurstöður úr mælingum Gallup frá því í apríl síðastliðinum. Nýjasta könnun Gallup var gerð dagana 19.-30. nóvember og var send á 1185 manns á landinu öllu á aldrinum 25-64 ára. Svarhlutfall var 53%.

Svipað hlutfall vinnur fjarvinnu og álíka marga daga

Í nóvember sögðust 39% svarenda hafa unnið einn eða fleiri daga í fjarvinnu heima á síðustu tíu dögum. Þetta eru svipaðar tölur og í október og apríl, en mun hærri tölur en við mældum i júní. Meðalfjöldi fjarvinnudaga sem fólk vann á síðustu tíu dögum hefur einnig lítið breyst frá því í október, segir Tómas

Áhugi á fjarvinnu stendur í stað milli mánaða

„Breytingar á áhuga á að vinna fjarvinnu eru innan skekkjumarka, þó hlutfallið sem sýni áhuga lækki milli mælinga. Ríflega tveir af fimm höfðu mikinn áhuga á að halda áfram að vinna fjarvinnu heima núna í nóvember, en nærri helmingur svarenda hafði mikinn áhuga á að vinna fjarvinnu i október, en þetta er breyting innan skekkjumarka, eins og áður sagði,“ sagði Tómas.

Besta blandan: Tveir til þrír dagar í viku?

„Langflestir þeirra sem hafa mikinn áhuga á að vinna fjarvinnu, sjá fyrir sér að vinna tvo til þrjá daga í viku heima. Stuðningur við það vex, ef eitthvað er, milli mælinga. Færri hafa áhuga á að vinna fjarvinnu alla eða nær alla vikuna og það er enn skýrara í niðurstöðum núna í nóvember en í október,“ segir Tómas og bætir við að mikilvægt sé að halda góðu sambandi við vinnustaðinn af mörgum ástæðum.


Tengdar fréttir

Gallup: Fleiri árekstrar einkalífs og vinnu í fjarvinnu

Nýjar tölur um fjarvinnu gefa vísbendingar um að mögulega séu auknar áskoranir í fjarvinnunni núna í október í samanburði við í sumar. Í dag birtir Atvinnulífið október tölur Gallup um fjarvinnu.

Endalok skrifstofurýma

Dagar skrifstofurýma eru senn taldir og skipuleggja þarf miðborgir upp á nýtt. Þá þarf að endurútfæra öll vinnuréttindi þar sem fjarvinna er komin til að vera.

Gantast á Teams og nýir ráðningasamningar með fjarvinnu

Það er ekki mögulegt fyrir allt starfsfólk að vinna í fjarvinnu en þar sem hún er möguleg hefur tæknin skipt sköpum. Þannig hefur félagslegi hlutinn þurft að færa sig yfir á Teams og Facebook þar sem reynt er að skapa jákvæða stemningu í stað þess félagsskapar sem fólk er vant að sækja á vinnustaði sína.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×