Makamál

Meirihluti kýs vináttuna fram yfir ástina

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Að verða ástfangin(n) af maka vinar eða vinkonu er staða sem okkur flestum finnst óbærileg. 
Að verða ástfangin(n) af maka vinar eða vinkonu er staða sem okkur flestum finnst óbærileg.  Getty

Stundum hefur verið sagt að ástin geti villt okkur sýn. Ákvarðanir sem teknar eru undir áhrifum hennar eru kannski ekki alltaf þær skynsamlegustu. Við getum hreinlega orðið blinduð af ást og þegar við verðum ástfangin þá skiptir fátt meira máli en að fá að svífa um á bleika skýinu.

Að eðlisfari erum við mis hrifnæm og því misjafn hversu fljótt við sleppum okkur á vald hrifningar eða ástar. Í síðustu viku spurðu Makamál lesendur Vísis að þessu: Ef þú og maki vinar þíns eða vinkonu yrðuð ástfangin, hvað myndir þú gera?

Alls tóku tæplega 1700 manns þátt í könnuninni og svaraði meirihluti því að þeir myndu taka vináttuna fram yfir ástina. Þó voru það 30% sem sögðust ekki vera viss. Það getur verið erfitt að setja sig í þessi spor fyrirfram því vináttan er okkur flestum eitt af því dýrmætara sem við eigum og því sú staða að verða ástfangin af maka vinar eða vinkonu óbærileg.

 Þegar kemur að ástinni getur þó allt gerst.

*Niðurstöður

Taka vináttuna fram yfir ástina - 58%

Láta reyna á ástina - 12%

Er ekki viss - 30%

Umsjónamaður Makamála mætti í Brennsluna á FM957 og ræddi niðurstöðurnar ásamt því að kynna til leiks nýja Spurningu vikunnar. Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan.

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir

Spurning vikunnar: Sérðu eftir fyrrverandi maka?

Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla sagði skáldið. Þegar samband endar, samband sem að öllum líkindum var ekki nógu gott, þá situr yfirleitt annar aðilinn eftir í sárum. Eftirsjá, söknuður og tómleiki eru tilfinningar sem oft á tíðum fylgja sambandsslitum.

Opnaðist fyrir sköpunargáfuna eftir sáran missi

„Ég skrifaði undir og ég er ennþá í dag að átta mig á því að það hafi bara gerst,“ segir Karítas Óðinsdóttir tónlistarkona í samtali við Vísi. Karítas er ein af þeim ungu og hæfileikaríku söngkonum sem vert er að fylgjast vel með. Hún er 28 ára gömul, fædd og uppalin í Borgarfirði og hefur tónlist verið stór hluti af hennar lífi frá unga aldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×