Fær loksins milljón króna hægindastólinn sem hún keypti með inneignarnótum Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. desember 2020 18:13 Eames-hægindastóll með svörtu leðuráklæði og palísander-viði, líkt og sá sem konan keypti í ágúst 2018. Penninn Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Pennann ehf. í síðustu viku til að afhenda konu milljón króna hægindastól, sem hún greiddi nær alfarið fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Penninn vildi ekki afhenda konunni stólinn og bar því fyrir sig að konan hefði fengið inneignarnóturnar með „óeðlilegum hætti“ á skiptibókamarkaði, auk þess sem þær mætti ekki nota til húsgagnakaupa.
Konan höfðaði mál á hendur Pennanum í lok október í fyrra. Penninn höfðaði svo gagnsök í málinu á hendur konunni í nóvember sama ár. Vildi fá stólinn eða endurgreitt Konan krafðist þess að Penninn yrði dæmdur til að afhenda henni hægindastól af gerðinni Eames Lounge Chair „úr palisander-viði og með svörtu leðuráklæði“, líkt og segir í dómi. Til vara krafðist hún þess að kaupum hennar á stólnum yrði rift og henni endurgreidd rúm ein milljón króna. Penninn krafðist þess að viðurkennt yrði að honum væri óskylt að afhenda hægindastólinn, auk þess sem viðurkennt yrði að konunni væri skylt að fá endurgreiðslu í formi inneignarnóta að upphæð 552.715 krónur, gjafabréf upp á 465.506 krónur og peningagreiðslu að fjárhæð 18.613 krónur. Safnaði upp í inneignina með sölu á skiptibókamarkaði Málið er rakið í dómi en þar kemur fram að konan hafi keypt umræddan Eames-hægindastól að andvirði 1.152.038 krónur í ágúst 2018. Hún fékk 10 prósent afslátt af stólnum og kaupverðið því 1.036.834 krónur. Konan greiddi fyrir stólinn með gjafabréfi að áðurnefndri fjárhæð, inneignarnótum eins og áður var getið og restina, 18.613 krónur, með greiðslukorti. Enginn fyrirvari var gerður við greiðsluna og gefinn var út sölureikningur fyrir kaupunum. Þá liggur fyrir að inneignarnótur konunnar voru tilkomnar vegna notaðra skólabóka sem hún seldi á skiptibókamarkaði. Gjafabréfið sem konan nýtti komst í vörslu hennar sem vinningur í happdrætti en hún lagði einnig inn á það aðrar inneignarnótur sínar hjá fyrirtækinu. Illa gekk að fá skýringar Konan sagðist svo hafa fengið veður af því í nóvember 2018 að eitthvert vandamál væri til staðar sem hindraði afhendingu hægindastólsins, sem sérpanta þurfti frá útlöndum. Hún kvaðst ekki hafa fengið á því haldbærar skýringar. Loks hefðu stjórnendur Pennans tjáð henni í janúar 2019 að ekki stæði til að afhenda henni stólinn. Verslun Pennans í Skeifunni, þar sem húsgögn eru í forgrunni.Penninn Konan byggði kröfu sína á því að hún hefði greitt fyrir stólinn og gerður hefði verið kaupsamningur, sem fari samkvæmt ákvæðum laga um lausafjárkaup. Þá var því lýst að ítrekað hefði verið gengið á eftir því við forsvarsmenn Pennann að þeir útskýrðu afstöðu sína í málinu en illa hefði gengið að fá hana fram. „Aðeins hafi verið gefnar munnlegar skýringar sem gangi út á það að gagnstefnandi telji inneignarnótur og gjafabréf aðalstefnanda ekki gildar til notkunar í viðskiptunum,“ segir í dómi. Þá hefði Penninn aldrei sagt konunni frá neinum fyrirvörum eða athugasemdum við kaupin á stólnum að fyrra bragði. Þvert á skilareglur Pennans Penninn mótmælti alfarið málatilbúnaði konunnar og taldi „ekki nokkur einustu skilyrði fyrir því að fallast á kröfur“ hennar, að því er segir í dómi. Penninn hélt því m.a. fram að það væri stefna fyrirtækisins að eiga ekki viðskipti líkt og þau sem málið snerist um, „þar sem tilraun sé gerð til kaupa á verðmætu húsgagni með því að nýta fjöldamargar inneignarnótur vegna bókaskila sem fengnar hafi verið með óeðlilegum hætti á skiptibókamarkaði námsmanna“. Þetta færi þvert á skilareglur Pennans, auk þess sem inneignarnótur væri ekki hægt að nota milli verslana og aðeins til kaupa á smásöluvöru, ekki vörum í húsgagnadeild. Þá hefði það verið fyrir mistök starfsmanns sem konan hefði fengið inneignarnótur færðar inn á gjafabréf. Konan í góðri trú Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að konan hefði ekki „misnotað“ skiptibókamarkað Pennans með því að selja þar margar bækur og safna inneignarnótum. Þá hefði Pennanum ekki tekist að sýna fram á að óheimilt hafi verið að greiða með inneignarnótum í húsgagnadeildinni. Ekki væri annað séð en að konan hefði þar verið í góðri trú og tekið hefði verið við nótunum án fyrirvara. Dómurinn mat það einnig svo að skilareglur Pennans væru óskýrar og fyrirtækið þyrfti að bera hallann af því. Penninn var að endingu dæmdur til að afhenda konunni Eames-hægindastólinn og konan sýknuð af dómkröfum í gagnsök. Þá var Pennanum gert að greiða konunni 850 þúsund krónur í málskostnað.
Dómsmál Neytendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Hvað er opið um páskana? Neytendur Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Viðskipti erlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Hvað er opið um páskana? Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum Fyrirtæki sem skili milljarða hagnaði leiki nú lausum hala Fólk sæki bætur sjálft til að sleppa við „blóðuga“ þóknun Gapandi yfir gjörbreyttu frumvarpi og varar við því Breytingarnar séu stórhættulegar og á kostnað launafólks Dældu skemmdri díselolíu á bíla sína Vara eindregið við frumvarpi sem leiði til verðbólgu Undrast að það séu hreinlega ekki óeirðir á Íslandi Mál tengd Base Parking á borði Neytendasamtakanna í hverjum mánuði Landsbankinn lækkar vexti Heyrðu fyrst frá blaðamanni um dómsmálið og að þau hefðu tapað því Gerði ekki gott mót og dæmdur til að veita afslátt Hefja uppbyggingu náttúrubaða við upphaf Gullna hringsins Bönkunum hugnast ekki greiðslumiðlun forsætisráðherra 35 fermetrar á 220 þúsund krónur Páskaegg hækkað um allt að 22 prósent á milli ára Skoða að sækja bætur fyrir neytendur vegna samráðsins Töskugjöldin hjá Icelandair og Play hækka Stjörnugrís innkallar skinku vegna listeríugerils Nammigrísir í áfalli yfir verðinu Verðbólga haldi áfram að hjaðna Hætt við að hætta með kartöflusalatið eftir tugi kvartana Staðfestu öll brot Svens á auglýsingabanni Mega ekki banna skil á óinnsigluðum unaðsvörum Innkalla súkkulaðihúðaða banana sem blönduðust valhnetum Sjá meira