Innlent

Starfsfólk í Kringlunni veiktist

Birgir Olgeirsson skrifar
Kringlan í samkomubanni
Kringlan í samkomubanni Vísir/Vilhelm

Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir smit sem komið hafa upp hjá starfsfólki í Kringlunni meðal þeirra sem séu í skoðun.

Starfsfólk í verslunarmiðstöðinni Kringlunni hefur veikst af kórónuveirunni en ekki er vitað hvar starfsfólkið smitaðist. Þetta segir Rögnvaldur Ólafsson, deildarstjóri hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu.

Uppfært klukkan 16: 

Jóhann K. Jóhannsson, upplýsingafulltrúi almannavarna, segir smitið í Kringlunni ekki tengjast verslunarrekstri þar heldur hafi tveir starfsmenn í skrifstofubyggingu Kringlunnar veikst. 

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna að rekja mætti smit til stórra verslunarmiðstöðva.

Grímuskylda er í verslunarmiðstöðvum en Rögnvaldur segist ekki þekkja hvert tilfelli fyrir sig varðandi þar sem smit hafa komið upp. 

„Það þarf að skoða það betur. Við vitum í einhverjum tilvikum um starfsfólk sem hefur veikst sem er að vinna í Kringlunni. En það er ekki vitað hvernig þau tilvik eru komin,“ segir Rögnvaldur.

Rögnvaldur Ólafsson.Vísir/Vilhelm

Einnig hafa smit verið rakin til veisluhalda um liðna helgi. Rögnvaldur segir þær veislur ekki hafa verið fjölmennar en í einhverjum tilvikum hafi fólk verið að fara á milli fámennra teita í heimahúsi. Fólk sé jafnvel farið að teygja sig svo langt að vera með hólfaskiptar veislur heima hjá sér.

„Það heldur ekkert í litlu rými,“ segir Rögnvaldur. Hann telur þetta til marks um að fólk sé að missa þolinmæðina gagnvart sóttvarnaaðgerðum, sem sé grátlegt í ljósi þess að nú sé farið að sjá fyrir endann á þeim. 

„Það yrði slæmt að missa þetta strax úr höndunum og desember ekki kominn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×