Brasilía vann Úrúgvæ og Cavani fékk rautt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. nóvember 2020 07:30 Richarlison fagnar marki sínu en með honum eru Roberto Firmino og Gabriel Jesus. AP/Raul Martinez
Brasilía og Argentína unnu sína leiki í undankeppni HM í fótbolta í nótt og eru þar með í tveimur efstu sætunum í Suðurameríkuriðlinum eftir fjórar umferðir. Brasilía vann 2-0 sigur á Úrúgvæ og Brasilíumenn eru þvi með tólf stig og fullt hús eftir fjóra fyrstu leikina í undankeppninni. Arthur og Everton-maðurinn Richarlison skoruðu mörk brasilíska liðsins og komu þau bæði í fyrri hálfleiknum. Edinson Cavani, framherji Úrúgvæ og Manchester United, var rekinn af velli á 71. mínútu. Dómarinn gaf honum fyrst gula spjaldið fyrir brot á Richarlison en Varsjáin breytti þeim dómi í rautt spjald. Edinson Cavani was sent off for Uruguay vs Brazil following a VAR review Everton's Richarlison had to be subbed off afterwards #MUFC #EFChttps://t.co/toFJqsCkPV— GiveMeSport Football (@GMS__Football) November 18, 2020 Brasilía hefur haft gott tak á Úrúgvæ en Úrúgvæmenn hafa ekki fagnað sigri í leikjum þjóðanna síðan árið 2001. Mark Arthur kom eftir sendingu frá Gabriel Jesus og með skoti fyrir utan teig á 34. mínútu sem hafði viðkomu í varnarmanni. Mark Richarlison á 45. mínútu var skallamark eftir fyrirgjöf frá Renan Lodi. Argentínumenn eru líka taplausir og tveimur stigum á eftir Brasilíu þökk sé 2-0 sigri á Perú. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik eins og hjá Brasilíumönnum. Nicolas Gonzalez kom Argentínu í 1-0 á 17. mínútu eftir sendingu frá Giovani Lo Celso og Lautaro Martinez bætti við öðru marki á 28. mínútu eftir stoðsendingu Leandro Paredes. Lionel Messi spilaði allan leikinn en átti ekki þátt í marki. Ekvador hefur komið mörkum á óvart en liðið er í þriðja sæti eftir 6-1 sigur á Kólumbíu.
HM 2022 í Katar Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti Fleiri fréttir Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Sjá meira