Heimsmarkmiðin

Dauðsföll vegna mislinga ekki fleiri í rúma tvo áratugi

Heimsljós
UNICEF

Alls létust á síðasta ári rúmlega tvö hundruð þúsund manns af völdum mislinga í heiminum öllum, börn í miklum meirihluta. Leita þarf 23 ár aftur í tímann til að finna hærri tölur um dauðsföll af völdum þessa skæða veirusjúkdóms. Fæst voru dauðsföllin árið 2016 en þau voru 50 prósent fleiri á síðasta ári, samkvæmt tölum frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO).

Dauðsföll af völdum mislinga voru 207.500 í fyrra og sjúkdómstilvikin rétt um 870 þúsund. Mislingafaraldrar hafa geisað í nokkrum ríkjum Afríku en einnig í austanverðri Evrópu, í löndum eins Georgíu, Norður-Makedóníu og Úkraínu.

Færri tilvik hafa greinst á þessu ári en ljóst er að heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur sett bólusetningar úr skorðum víðast hvar í heiminum. Að mati WHO eiga 94 milljónir manna í hættu að fara á mis við bólusetningu vegna mislinga í 26 löndum, meðal annars löndum þar sem mislingafaraldur geisar. Óbólusettum börnum fjölgar á heimsvísu vegna COVID-19, í fyrsta sinn frá aldamótum.

„Áður en kórónuveiran kom til var barist við mislinga og þeir hafa ekki horfið,“ segir Henrietta Fore framkvæmdastýra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). „Þótt álagið sé mikið á heilbrigðiskerfi vegna COVID-19 megum við ekki láta baráttu gegn einum banvænum sjúkdómi vera á kostnað annars sjúkdóms,“ segir hún í yfirlýsingu.

Bólusetning gegn mislingum gefur 95 prósent langtímavörn. Til þess þarf að bólusetja í tvígang. Fyrri bólusetningin hefur í heilan áratug verið nálægt 85 prósentum en sú síðari nær sífellt til fleiri barna en er þó aðeins í 71 prósenti. Nauðsynlegt hlutfall bólusettra í samfélögum til þess að afstýra faraldri þarf að vera 95 prósent.

Í síðustu viku sendu UNICEF og WHO frá sér sameiginlegt ákall til aðgerða til að afstýra faröldrum mislinga og lömunarveiki. Að mati stofnananna þarf 255 milljónir bandarískra dala til viðbótar á næstu þremur árum til að takast á við yfirvofandi mislingafaraldra í 45 löndum.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×