Innlent

And­lát vegna Co­vid-19 á Land­spítala

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa nú 24 látist vegna Covid-19 hér á landi.
Alls hafa nú 24 látist vegna Covid-19 hér á landi.

Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19.

Þetta kemur fram á vef Landspítalans. Aðstandendum hinna látnu er vottuð samúð í tilkynningu spítalans.

Alls hafa því 24 látist vegna Covid-19 hér á landi frá upphafi kórónuveirufaraldursins í lok febrúar.

Tíu létust í fyrstu bylgju faraldursins síðasta vetur og fjórtán hafa látist í þeirri bylgju sem nú gengur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×