Netverslun vikunnar: Allt að 50 % afsláttur á degi einhleypra á Mynto.is Mynto.is 9. nóvember 2020 08:50 Heba Fjalarsdóttir, Viktor Grönfeldt Steinþórsson, Viktor Margeirsson, Brynjar Gauti Þorsteinsson og Gunnar Kolbeinsson standa að Mynto.is Ólafur Alexander Ólafsson
Mynto.is er netverslun vikunnar á Vísi. Mynto er fyrsta vefverslunarmiðstöð Íslands og var sett á laggirnar í miðjum COVID-19 heimsfaraldrinum á þessu ári. Mynto fer ört stækkandi og nú má finna þar 70 vefverslanir sem hægt er að versla við á einum stað. Þekktar verslanir á borð við Epal, Altis, Húrra Reykjavík, Sóley Organics, Nespresso og Fífa eru til að mynda á Mynto og mun fjöldi nýrra verslana bætast við á næstu vikum. Vöruúrvalið er fjölbreytt, allt frá Apple tölvum til veiðistanga og giftingahringa. Öll bestu tilboðin á einum stað Þrír söluhæstu dagar netverslunar á Íslandi eru framundan í nóvember. Fyrst er það Dagur Einhleypra sem er 11.11, þar næst Svartur Föstudagur 27.11 og síðan Cyber Monday 30.11. „Mynto hefur unnið hörðum höndum að því að skipuleggja þessa daga með samstarfsverslunum okkar og munu verslanir vera með allt að 50% afslætti inni á Mynto. Fólk þarf því aðeins að fara á einn stað á vefnum til að finna öll bestu tilboðin í ár,“ Segir Heba Fjalarsdóttir, markaðsstjóri Mynto. Vefverslun vex hratt á Íslandi „Síðustu vikur höfum við séð gríðarlega aukningu á notkun og sölu á Mynto. Án efa spila fjöldatakmarkanir þar inn í, en margir kjósa að nota netverslun frekar en að standa í röðum og hafa áhyggjur af sóttvörnum. Þá er einnig jólaumferðin að byrja og maður heyrir að fólk er tímanlegra í ár að byrja að kaupa jólagjafir. Það er auðvelt að finna bestu tilboðin og jólagjafir fyrir alla á Mynto. Notendur Mynto eru upplýstir kaupendur en þeir geta borið saman verð og vörur og auðveldlega fundið eitthvað fyrir alla.“ Auka þægindin í desember „Mynto vinnur líka að því að gera jólainnkaup auðveldari þar sem að þú getur ekki bara pantað frá mörgum verslunum í einni pöntun heldur munum við bráðlega bjóða upp á að kaupendur geti borgað eitt sendingargjald fyrir að fá allar vörurnar sendar í einum pakka, sama hversu mörgum verslunum það er frá. Stefnt er að því að ná þessu í gang í byrjun desember í seinasta lagi,“ segir Heba. Óskalistar auðvelda fólki að finna réttu gjöfina „Við mælum með því að fólk geri óskalista á Mynto. Við erum að búa til lausn þar sem hægt verður að deila óskalistanum sínum með vinum og vandamönnum. Þangað til að það kemur hefur fólk verið að taka skjáskot af listunum og senda á milli. Þetta er mjög skilvirk leið til að fá allt sem manni langar í! Á næstu dögum kemur einnig ný uppfærsla af appinu þar sem notendaviðmótið hefur verið betrumbætt." Sjáðu vöruúrvalið hér
Lífið Jól Verslun Hús og heimili Mest lesið Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Viðskipti innlent Vaxtaverkir í golfi: Kylfingum fjölgar um þúsundir á ári Atvinnulíf Ben kveður Jerry Viðskipti erlent Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Viðskipti innlent Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Neytendur Vara við díoxíni í Landnámseggjum Viðskipti innlent Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Viðskipti innlent Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Viðskipti innlent Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Viðskipti innlent Fleiri fréttir Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Sjá meira