Atvinnulíf

Fatnaður í fjarvinnu: Kósý eða „casual“?

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Í fjarvinnunni hafa margir valið þá leið að huga betur að fatnaði að ofan á meðan klæðnaður neðri hluta líkamans getur verið alls konar.
Í fjarvinnunni hafa margir valið þá leið að huga betur að fatnaði að ofan á meðan klæðnaður neðri hluta líkamans getur verið alls konar. Vísir/Getty

Það getur verið freistandi að sitja bara í fjarvinnu í jogging eða jafnvel náttbuxum. Engin ástæða lengur til að taka sig til fyrir vinnuna, sem flestir jú gera samt almennt. Enda skiptir það svo sem engu máli fyrir vinnuna hvernig hver og einn er klæddur, svo lengi sem verkefnin eru unnin.

Það getur hins vegar haft áhrif á líðan og afköst fólks, hvernig það er klætt í fjarvinnu.

Skoðum málin.

Kostirnir við kósýfötin

Í umfjöllun Today segja álitsgjafar úr bæði háskólasamfélaginu og tískuheiminum að kostirnir við að klæðast kósýfötum í fjarvinnu séu ýmsir. Sem dæmi má nefna:

  • Við erum afslöppuð
  • Við erum ekki í stuði til að klæða okkur upp
  • Það fer enginn tími í að hafa sig til
  • Fyrir fjarfundi er nóg að vera snyrtilega klæddur „að ofan“
  • Að multitaska heimilisverk og fjarvinnu getur verið þægilegra í kósýfötum

Millivegurinn: Kósý og „casual“

En sumum líður ekkert of vel að vera alltaf hálf óklæddir eða ótilhafðir frá morgni til kvölds. Þá gæti verið leið að fara milliveginn. Dæmi:

Þægilegar buxur, sokkar og skór en efri hlutinn klæddur upp í betri fatnað. Konur nota eyrnalokka eða lágmarks förðun. Karlar sleppa bindi en fara kannski í skyrtu eða góða peysu. Hárið er vel greitt og snyrtilegt.

Með því að fara þennan milliveg líður fólki oft eins og það sé í rauninni vel tilhaft fyrir vinnuna, fjarfundi eða önnur samskipti yfir daginn, þótt það sé munur á klæðnaðinum í samanburði við þegar mætt er á vinnustaðinn.

Fataval til að hressa okkur við

Í fjarvinnu er mælt með því að fólki byggi upp rútínu sem það haldi sig síðan við. Það sama á við um klæðnað. Dagsformið okkar getur verið mismunandi en eitt af því sem við höfum lært á fjarvinnu er að við þurfum að hafa meira fyrir því að hressa okkur við því félagslega tengingin er ekki lengur til staðar eins og á vinnustöðum.

Klæðnaður getur hjálpað í þessu því samkvæmt sérfræðingum hressir það okkur við að klæða okkur aðeins upp. Þannig að þótt dagsformið okkar kalli á að vera bara í kósýfötunum eða ótilhöfð yfir daginn, en við söknum félagslegu samskiptanna, er um að gera að lyfta lundinni svolítið upp með því að hafa sig aðeins meira til.

Þar er meira að segja hægt að gera alls kyns tilraunir. Horfa á úrvalið í fataskápnum og prófa nýjar samsetningar. Ákveða hvaða fatnað þú lítur á sem vinnufatnað í fjarvinnu og hvaða flíkur ekki.

Þá getur það hjálpað okkur að aðskilja vinnu og einkalíf að klæðast vinnufatnaði á daginn en í lok vinnudags skiptum við aftur í kósýfatnað.

Litaval hefur áhrif

Þá er það staðreynd að mismunandi litir hafa mismunandi áhrif á okkur. Litir geta því verið liður í að lyfta okkur aðeins upp og þó ekkert endilega að það sé eitthvað mikið. Litur í einhverjum aukahlut fyrir hár, belti eða bolur í lit geta gert sitt. Smá varalitur eða gloss getur gert sitt hjá konum.

Til að auka á afköst hafa rannsóknir líka sýnt að eftirfarandi litir efla okkur: Appelsínugulur, rauður, gulur, vínrauður.

Litir sem hjálpa okkur að slappa af eða draga úr stressi eru til dæmis blár og blágrænn.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×