Hazard skoraði í öruggum sigri Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hazard og Benzema fagna.
Hazard og Benzema fagna. getty/Gonzalo Arroyo Moreno

Real Madrid er komið á toppinn í spænsku deildinni eftir 4-1 sigur á Huesca í dag.

Eden Hazard kom Spánarmeisturunum á bragðið með marki á 40. mínútu og Karim Benzema bætti um betur á 45. mínútu þegar hann tvöfaldaði forystuna.

Federico Valverde skoraði þriðja mark Real á 54. mínútu en David Ferreiro minnkaði muninn fyrir gestina tuttugu mínútum síðar.

Karim Benzema skoraði síðan annað mark sitt og innsiglaði sigurinn fyrir Madrídinga í uppbótartíma.

Real Madrid er nú í fyrsta sæti með sextán stig eftir sjö leiki en Huesca er í fallsæti með fimm stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira