Atvinnulíf

Keypti fyrirtækið þremur vikum fyrir bankahrun

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Hildur Guðnadóttir.
Hildur Guðnadóttir. Vísir/Vilhelm

Það er engan bilbug á Hildi Guðnadóttur að finna, sem nú fer í gegnum sitt annað samdráttarskeið með fyrirtækið sem hún keypti þremur vikum fyrir bankahrun. „Ástæðan fyrir því að ég ákvað að kaupa þetta fyrirtæki var sú að frá árinu 1998 hef ég unnið hjá sambærilegum fyrirtækjum, byggt upp þekkingu og haft ánægju af,“ segir Hildur og vísar þar til kaupa á fyrirtækinu Satúrnus, sem hún hefur verið eigandi að frá því árið 2007. Satúrnus er heildverslun sem stofnuð var árið 1958 og hefur frá upphafi flutt inn hannyrðavörur. Árið 2010 opnaði Hildur síðan verslunina Amma mús – handavinnuhús.

Síðustu vikurnar hefur Atvinnulífið á Vísi rætt við fólk sem stofnaði fyrirtæki í kjölfar bankahruns og kreppu. En hvernig er að stýra fyrirtæki sem var keypt skömmu fyrir bankahrun?

Rödd lítilla fyrirtækja of veik

Þótt Hildur hefði starfað hjá sambærilegu fyrirtæki áður, var framtíðarsýnin hennar fyrir rekstur sem þennan annar en hjá því fyrirtæki sem hún hafði starfað fyrir.

„Þar sem ég starfaði 2007 var á þeim tíma skortur á framtíðarsýn að mínu mati þ.a. ég sagði upp og ákvað að gera eitthvað annað,“ segir Hildur og bætir við: „Svo leið tíminn og ég sá það að ég tímdi ekki að sóa allri minni þekkingu og reynslu, vissi af þessu fyrirtæki og kannaði hvort að það væri til sölu. Framhaldið er þekkt.“

Hjá fyrirtækinu starfa sex konur í föstu starfi. Hildur segir rödd lítilla fyrirtækja vera of veika á Íslandi.

Í stóru myndinni gleymist of oft mikilvægi lítilla fyrirtækja sem skapa fjölbreytni en þeirra rödd er of veik. Ríkisvaldið mætti til dæmis styðja við með þeim hætti að hafa tryggingagjaldið þrepaskipt eftir árlegri veltu, lægra hjá smærri fyrirtækjum,“ 

segir Hildur.

Hildur segir samdráttarskeiðið eftir hrun og í kjölfar Covid kannski helst ólíkt að því leytinu til að fólk heldur sig meira heima fyrir nú. Prjóna- og saumaskapur og hannyrðir ýmsar eru þó vinsælar á tímum sem þessum.Vísir/Vilhelm

En hvaða ráð myndir þú gefa öðrum sem mögulega skoða að hefja sinn fyrirtækjarekstur nú, á krepputímum í kjölfar kórónufaraldurs?

Til að fara í rekstur þarf að mínu mati að hafa heildarsýn, stefnu, gott starfsfólk, góða vöru og þol til að taka á þeim verkefnum sem koma. Í litlum fyrirtækjum, eins og mínu, er ekki val um deild eða einhvern annan sem á að gera hlutina,“ 

segir Hildur.

Þá segir hún líka skipta máli að taka réttar ákvarðanir miðað við þá starfsemi sem farið er í. Hjá henni skipti til dæmis miklu máli að vera með verslunina á góðri staðsetningu en Amma mús – handavinnuhús er staðsett í Fákafeni. „Rétta“ staðsetningin skiptir líka máli þar sem þú getur í leiðinni kíkt við,“ segir Hildur.

Að sögn Hildar er kórónufaraldurinn ekki að hafa neikvæð áhrif á söluna hjá sér. Prjóna- og saumaskapur sé einfaldlega of samtvinnaður í okkar menningu, auk annarra hannyrða.

„Þegar kreppir að í þjóðfélaginu heldur fólk sig meira heima við og grípur í þessa þekkingu til að hafa ofan af fyrir sér. Það er líka gefandi og veitir hugarró að skapa,“ segir Hildur.

Þá segir hún unga fólkið sýna áhuga.

„Hvað varðar stöðuna í Covid og eftir bankahrun þá er samnefnarinn sá að fleiri eru heima og það sama gerist líka að unga fólkið vill vera með. Þannig að menningunni er líka viðhaldið að þessu leiti. Gott mál að viðhalda þekkingunni,“ segir Hildur.


Tengdar fréttir

Hringdu í fjárfesta í níu ár og velta nú milljarði

Benedikt Skúlason framkvæmdastjóri Lauf Forks segir umhverfi fjármögnunar nokkuð vanþróað á Íslandi fyrir nýsköpun. Fyrirtækið veltir nú tæpum milljarði og gerir ráð fyrir miklum vexti næstu árin.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×