Viðskipti innlent

Vextir á lánum hækka hjá Íslandsbanka

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Íslandsbanki ætlar að hækka vexti á húsnæðislánum í vikunni. Hækkunin nemur allt að 0,35 prósentustigum og nær til verðtryggðra húsnæðislána og lána á föstum óverðtryggðum vöxtum. Arion banki segir vexti ekki til skoðunar sem stendur. Landsbankinn segir sífellt lagt mat á stöðuna. 

Viðskiptablaðið greindi frá því á föstudag að Íslandsbanki ætlaði að hækka vexti vegna hærri fjármögnunarkostnaðar. Vaxtahækkunin nær bæði til verðtryggðra og óverðtryggðra lána.

Meginvextir Seðlabanka Íslands eru eitt prósent og var haldið óbreyttum við síðustu ákvörðun peningastefnunefndar bankans þann 7. október. Þeir hafa verið óbreyttir síðan í maí en höfðu lækkað um 3,5 prósentustig á einu ári þar á undan.

„Vegna aukinnar útbreiðslu veirunnar að undanförnu hafa efnahagshorfur versnað frá því sem gert var ráð fyrir í ágúst. Óvissan er hins vegar mikil og þróun efnahagsmála mun að töluverðu leyti ráðast af framvindu farsóttarinnar,“ sagði í síðasta rökstuðningi peningarstefnunefndar.

Engin tíðindi hjá hinum bönkunum

Fréttastofa sendi skriflega fyrirspurn á Arion banka og Landsbankann. Spurt var hvort hækkun vaxta væri í farvatninu hjá bönkunum.

„Arion banki er ekki að skoða að breyta vöxtum að svo stöddu,“ sagði í svari Haraldar Guðna Eiðssonar, upplýsingafulltrúi Arion banka.

„Landsbankinn metur sífellt vaxtastig á innlánsreikningum og útlánum, m.a. með hliðsjón af vöxtum Seðlabankans, vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum. Ekki er greint frá vaxtaákvörðunum fyrr en þær liggja fyrir,“ segir Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi Landsbankans.

Þessir vextir hækka hjá Íslandsbanka

Íslandsbanki hefur ekki greint frá hækkununum á heimasíðu sinni enn sem komið er. Í svari við fyrirspurn Viðskiptablaðsins kemur fram hvaða lán munu breytast, og hvernig:

Verðtryggð húsnæðislán með vaxtaendurskoðun hækka úr 1,95% í 2,05%

Verðtryggð viðbótarhúsnæðislán með vaxtaendurskoðun hækka úr 1,95% í 2,05%

Fastir óverðtryggðir vextir húsnæðislána til 36 mánaða hækka úr 3,95% í 4,10%

Fastir óverðtryggðir vextir viðbótarhúsnæðislána til 36 mánaða hækka úr 5,05% í 5,2%

Fastir óverðtryggðir vextir húsnæðislána til 60 mánaða hækka úr 4,05% í 4,40%

Fastir óverðtryggðir vextir viðbótarhúsnæðislána til 60 mánaða hækka úr 5,15% í 5,5%

Fréttin var uppfærð. Í svar Arion banka til fréttastofu vantaði orðið ekki sem breytti algjörlega svari bankans. Í fyrri útgáfu stóð að bankinn hefði vextina til skoðunar. Hið rétta er að svo er ekki. Þetta var lagað um leið og Arion banki leiðrétti svar sitt.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×