Liverpool vann í Hollandi á sjálfsmarki

Anton Ingi Leifsson skrifar
Púlarar fagna sjálfsmarkinu í kvöld sem tryggði þeim að endingu sigurinn.
Púlarar fagna sjálfsmarkinu í kvöld sem tryggði þeim að endingu sigurinn. Alex Gottschalk/DeFodi Images

Liverpool byrjar Meistaradeildina vel þetta tímabilið en  þeir unnu 1-0 sigur á Ajax á útivelli í 1. umferð keppninnar í kvöld.

Það voru einhverjar breytingar á liði Liverpool frá því um helgina en Virgil van Dijk er eins og kunnugt er á meiðslalistanum. Curtis Jones fékk tækifæri í byrjunarliðinu.

Það leit þó einungis eitt mark dagsins ljós í leiknum og það kom á 35. mínútu er Nicolas Tagliafico varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net.

Ajax komst nálægt því að skora skömmu fyrir hlé en Fabinho bjargaði þá á marklínu. Liverpool fékk einnig tækifæri til að bæta við marki en Gini Wijnaldum fékk m.a. gott færi.

Ekki urðu mörkin fleiri og lokatölur 1-0. Öflugur útisigur Liverpool sem fær danska liðið Midtjylland í heimsókn í næstu viku en Danirnir töpuðu 4-0 fyrir Atalanta í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira