Dortmund og Bayern með sigra Ísak Hallmundarson skrifar 17. október 2020 18:32 Thomas Muller fagnar einu af mörkum sínum í dag. getty/Sascha Steinbach
Borussia Dortmund og Bayern Munchen unnu góða útisigra í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Dortmund fór í heimsókn til Hoffenheim þar sem niðurstaðan í leiknum var 1-0 sigur Dortmund. Marco Reus gerði sigurmarkið á 76. mínútu eftir stoðsendingu frá Erling Haaland. Bayern mætti nýliðunum í Arminia Bielefeld og voru það Thomas Muller og Robert Lewandowski sem sáu um markaskorun Bayern í 4-1 sigri. Muller kom meisturunum yfir strax á 8. mínútu áður en Lewandowski bætti við tveimur mörkum fyrir Bayern og staðan 3-0 í hálfleik. Muller var svo aftur á ferðinni á 51. mínútu þegar hann skoraði annað mark sitt og fjórða mark Bæjara, í þetta sinn eftir stoðsendingu frá Lewandowski. Ritsu Doan minnkaði muninn fyrir nýliðana á 58. mínútu og meira var ekki skorað. Corentin Tolisso í liði Bayern fékk að líta beint rautt spjald á 76. mínútu en það kom ekki að sök, lokatölur 4-1 sigur Bayern Munchen. Staðan í deildinni er þannig að Bayern og Dortmund eru jöfn að stigum með níu stig í 2. - 3. sæti eftir fjórar umferðir en Bayern er með töluvert betri markatölu.
Þýski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Sjá meira