Gylfi og Jóhann Berg farnir til Englands og sjö leikmenn dottnir út úr hópnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2020 10:46 Gylfi Þór Sigurðsson og Aron Einar Gunnarsson verða ekki með á móti Belgíu annað kvöld. Vísir/Vilhelm
Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, útskýrði fjarveru leikmanna í leiknum á móti Belgíu á Laugardalsvelli á morgun, þegar hann hitti blaðamenn í dag. Sjö leikmenn verða fjarverandi í þessum leik en það eru Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson, Alfreð Finnbogason og Arnór Sigurðsson. Erik Hamrén sagði á blaðamannafundi í dag að hann hafi fyrir fram ætlað að passa upp á það að sem fæstir leikmenn myndu spila alla þrjá leikina í þessum glugga en íslenska liðið spilaði þrjá leiki á sex dögum. Allt voru þetta keppnisleikir og bæði erfiðir líkamlega og andlega. Erik Hamrén leyfði Gylfa Þór Sigurðssyni og Jóhanni Berg Guðmundssyni að fara heim til sinna til í Englandi en hann taldi það vera best fyrir þá og um leið þá best fyrir íslenska landsliðið fyrir leikinn mikilvæga á móti Ungverjum í næsta mánaða. Hamrén sagði að Jóhann Berg hafi ekki getað spilað gegn Danmörku eins og vonast hafði verið til. „Hann var ekki hundrað prósent og við vildum því ekki taka neina áhættu með hann,“ sagði Erik Hamrén. Gylfi fær líka nokkra daga til að sýna sig fyrir Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóra Everton. „Þetta var best fyrir hann og þar með best fyrir okkur,“ sagði Hamrén. Erik Hamrén fór líka yfir meiðslin í hópnum sem og að hann hefði náð samkomulagi við Al Arabi að Aron Einar færi heim eftir tvo fyrstu leikina. Sjö leikmenn eru þar með dottnir út úr hópnum. Kári Árnason, Ragnar Sigurðsson og Alfreð Finnbogason meiddust allir í síðustu tveimur leikjum og þá er Arnór Sigurðsson ekki búinn að jafna sig á meiðslunum sem hafa haldið honum frá síðustu leikjum.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Fótbolti Bjarni lætur af störfum hjá KR Fótbolti Ítalía kom til baka gegn Albaníu Fótbolti Skotar yfirtaka München: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ Fótbolti Ekkert verður af endurkomu McGregor í búrið Sport Ætla ellefu sinnum upp Esjuna og safna áheitum Sport „Ég er ekki stoltur af þessu“ Íslenski boltinn Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Fótbolti Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM Fótbolti Spánverjar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Yngsti þjálfari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sjáðu fljótasta mark í sögu EM og endurkomu Ítalíu Hundraðasta mark Söndru Maríu kom í Garðabænum Ítalía kom til baka gegn Albaníu Spánverjar skoruðu mörkin Yngstur í sögunni: Fagnaði áfanganum með stoðsendingu Uppgjör: Stjarnan – Þór/KA 1-4 | Sandra María hættir ekki að skora Spánverjar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Sjáðu mörkin: Sviss byrjar af krafti „Það er erfitt að koma hingað og sækja stig“ Uppgjör: FH varði forskotið og tók öll stigin Emilía Kiær danskur meistari með Nordsjælland Öruggur sigur Sviss í fyrsta leik Brjálað stuð og blíða á pæjumótinu Cole Palmer skapaði óvart jarmveislu á Twitter Vistaskipti Ísaks til Düsseldorf staðfest formlega Kevin Campbell látinn eftir stutt veikindi Matija Sarkic látinn aðeins 26 ára gamall Ratcliffe ræðst í fimmtíu milljóna punda endurbætur á Carrington æfingasvæðinu Spánverjar missa miðvörð í meiðsli fyrir fyrsta leik Lallana snýr aftur til Southampton Yngsti þjálfarinn stýrði stærsta opnunarsigri í sögu EM Sir Alex og Mourinho sátu saman á opnunarleik EM Öruggur heimasigur og sex mörk skoruð í opnunarleik EM Goðsögn kveður Dortmund Mættur á EM eftir að hafa gengið frá Glasgow til München Stórskotalið var á blaðamannafundi Vals Frábær umgjörð hjá kvennaliði Fylkis Everton vill fá 80 milljónir punda fyrir Branthwaite Skotar yfirtaka München: „Aldrei séð neitt þessu líkt“ Sjá meira