Atvinnulíf

„Hunskastu framúr kona!“ og í samningaviðræðum við sjálfan sig

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs. Vísir/Vilhelm

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir segir það í raun ekki svo ólíkt að starfa í pólitík eða sem stjórnandi í einkageiranum. Starfið felist mikið í að vinna með fólki. Í dag er hún formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar í Reykjavíkur en fyrir þann tíma var hún m.a. forstjóri Gray Line og áður eigandi Pizza Hut á Íslandi og í Finnlandi um árabil.  Þórdís Lóa gerir ráð fyrir að setja sér all harkalegt markmið um næstu áramót.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég er agaleg á morgnana. Langar alltaf að sofa lengur en ég má því ég er í grunninn B týpa og sef eins og unglingur. 

Hins vegar er ég alltaf með háleit markmið um að verða ofurhress A týpa sem sprett uppúr rúminu tilbúin í Mullers æfingar eða sund.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

Morguninn byrjar á samningaviðræðum við sjálfa mig. Þarf ég virkilega að fara á fætur? 

En þar sem mér er vanalega ekki til setunnar boðið þá hendist ég framúr í loftköstum til að fara á æfingu með Kempunum sem æfa saman í Elliðarárdalnum og í Árbæjarþreki.

Ef ég hef tíma þá enda ég í pottinum í Árbæjarlaug. Það er í miklu uppáhaldi hjá mér að geta farið í pottinn því þar fær ég beint í æð hvað pottormunum finnst um fréttir dagsins og pólitíkina. Þau kalla mig Ófriðinn því það verður oft allt vitlaust í pottinum þegar ég mæti.“

Hver finnst þér vera mesti munurinn á því að starfa í stjórnmálum annars vegar en sem stjórnandi í einkageiranum hins vegar?

„Munurinn er bæði mjög mikill og einnig lítill. Í stjórnmálum vinnum við í lýðræðislegu umhverfi þar sem almannahagsmunir eru alltaf í forgrunni. Umgjörðin er stjórnsýsla, lög og reglur þannig að takturinn er allt annar og ákvarðanir þurfa að taka lengri tíma og undirbúning. 

Það sem er hins vegar alltaf eins er fólkið.

Hvort sem maður er stjórnandi í einkageiranum eða opinbera geiranum þá gerir maður ekkert einn. Þetta snýst um að fá fólk með sér, vinna verkin, þykja þau skemmtileg, eiga verkefnin saman og setja sýn og sameiginleg markmið sem allir vinna saman að. 

Að vera stjórnandi eða leiðtogi í opinbera geiranum er því nauðalíkur einkageira nema takturinn og hraðinn er annar.“

Þórdís Lóa er af flestum kölluð Lóa. Hún gerir ráð fyrir að þurfa að breyta áramótaheitinu sínu þannig að árið 2021 verði markmiðið: „hunskastu á fætur kona“.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Mín vinna felst fyrst og fremst í að stjórna borginni með félögum mínum í meirihlutanum. Sem formaður borgarráðs má segja að ég sé nokkurs konar stjórnarformaður borgarinnar.

Við erum núna í risavöxnu verkefni sem er að stilla upp fjárhags- og fjárfestingaráætlun Reykjavíkur fyrir næstu ár. Svo hef ég meðal annars stýrt vinnu við ferðamálastefnu Reykjavíkur. Þar erum við að teikna upp hvernig Reykjavík tekur á móti gestum, þegar þeir koma aftur.

Þá þurfum við að vera tilbúin, með ferðaþjónustunni í markaðssetningu og sýna Reykjavík eins og hún er; lifandi og framsækna mannlífsborg sem gaman er að heimsækja og þar sem gott er að búa.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég reyni að nýta tæknina til skipulagningar. Ég er með marga mjög reglubundna fundi, eins og fundi borgarstjórnar og borgarráðs og marga bolta á lofti. Í dagatalinu þarf ég því að gefa mér pláss til að undirbúa þessa fundi.

Svo þarf ég líka að hafa ákveðinn sveigjanleika til að bregðast við öllu því sem upp getur komið í pólitík. Sem betur fer hefur þessi meirihluti unnið vel saman, sem auðveldar skipulagið. Við erum með stóru sýnina á Asana til að fylgja eftir meirihlutasáttmálanum. 

Til að missa ekki bolta held ég um öll verkefnin mín á Trello, svo nota ég Slack mikið fyrir samskipti.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Í byrjun árs var áramótaheitið „Farðu að sofa kona!“ sem felst í því að ég reyni að fara í rúmið milli hálf ellefu og gengur framar vonum. 

Það sem hins vegar ekki hefur ræst er að ég vakni að sama skapi eiturhress og fersk. Þannig að næsta markmið verður líklega „hunskastu á fætur kona!


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×