Rafíþróttir

KR-ingar stefna á toppinn: Kórónu­far­aldurinn kom í veg fyrir þátt­töku á móti er­lendis

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kristján Finnsson [kruzer] er leikmaður KR í Vodafone deildinni.
Kristján Finnsson [kruzer] er leikmaður KR í Vodafone deildinni. Rafíþróttadeild KR

Kristján Finnsson, eða kruzer er hluti af öflugu liði KR í Vodafone deildinni en þar er keppt í tölvuleiknum Counter Strike: Global Offensive.

Kristján hefur ekki alveg þann tíma til að spila sem hann hafði á sínum yngri árum enda orðinn hálfgert gamalmenni í Counter-Strike aldri, 27 ára gamall. Lið KR er í bullandi toppbaráttu við Dusty um toppsæti Vodafone deildarinnar. Dusty trónir á toppnum með 10 sigra í 10 leikjum. KR-ingar koma þar á eftir með níu sigra og eitt tap.

Sjá einnig: Arnór situr í stjórn rafíþróttadeildar KR

Liðin mætast þann 13. október og stefna KR-ingar á sigur. Þá telur Kristján að Hafið geti vel unnið toppliðin á góðum degi. Við ræddum örstutt við Kristján um KR, Counter Strike og Vodafone deildina.

„Við reynum að æfa allavega tvisvar í viku og svo keppum við alltaf á þriðjudögum og fimmtudögum. Ef mig minnir rétt eigum við eftir fjóra leiki í Vodafone deildinni og svo förum við í úrslitakeppni,“ sagði Kristján sem hefur verið í KR undanfarin tvö tímabil.

Varðandi æfingar á tímum kórónuveirunnar, þjálfun og KR liðið

„Við erum mestmegnis bara heima að æfa núna og erum það oftar en ekki. Við reynum að taka reglulegar æfingar saman niðri í KR en það gengur ekkert alltaf upp. Við erum allir mjög góðir vinir svo við hittumst reglulega þó við séum ekki að hittast og spila Counter-Strike.“

Lið KR í Vodafone deildinni er skipað leikmönnunm hér að ofan.Rafíþróttadeild KR

„Við erum í rauninni ekki með þjálfara þannig séð og það hefur svo sem enginn á mínum aldri verið þjálfaður í Counter-Strike. Það er að breytast núna og ég veit að ýmis íþróttafélög bjóða upp á æfingar fyrir krakka allt niður í 11-12 ára aldur. En við sem vorum að spila fyrir 10-15 árum eða meira vorum ekkert þjálfaðir.“

„Við erum þannig sex í liðinu þó það séu bara fimm að spila hverju sinni. Þórir Viðarsson [TurboDrake] er þjálfari og framkvæmdarstjóri. Það er mikilvægt að hafa einn sem heldur utan um liðið, sér til þess að menn mæti í myndatökur þegar þær eru, fylgist með mótum – hér á landi og erlendis – og sér í rauninni um allt sem við hinir höfum ekki tíma í,“ sagði Kristján er undirritaður spurði hvort þjálfarinn væri ekki að reyna draga menn á æfingar frekar en að spila heima.

GAME DAY Knattspyrnufélag Reykjavíkur spilar gegn Íþróttafélagið Fylkir í vinsælasta rafíþróttaleik á Íslandi...

Posted by KR.esports on Thursday, September 24, 2020

Eins og áður sagði er Kristján orðinn hálfgert gamalmenni í Counter-Strike heiminum verandi orðinn 27 ára gamall. Hann segir að markmiðin hafi aðeins breyst þó það sé alltaf stefnt á sigur.

„Markmiðin hafa aðeins breyst frá því maður var yngri. Maður er orðinn svo gamall og við spilum bara tvisvar í viku. Erfitt að spila við stráka sem eru rétt í kringum tvítugt og spila alla daga. Það kemur kannski aðeins niður á metnaðinum en við ætlum okkur alltaf sigur. Við náðum svo í einn ungan og mjög góðan leikmann frá Keflavík sem kveikti aðeins í manni, kveikti á þessum neista sem maður verður að hafa. Svo erum við mjög meðvitaðir um hvað við erum að gera, við rýnum í leikina sem við töpum og reynum að átta okkur á af hverju við töpuðum. Ef menn gerðu einstaklingsmistök þá viðurkenna menn það bara og við höldum áfram með lífið.“

Er eðlilegt að menn gangi kaupum og sölum í Counter-Strike?

„Menn eru kannski ekkert að kaupa leikmenn eins og í íþróttum erlendis en það hefur alltaf verið þannig að bestu leikmennirnir hér á landi enda í bestu liðunum. Það hefur verið þannig frá því í gömlu Counter-Strike leikjunum [1,6 og Source] að ef menn voru nægilega góðir þó fóru þeir þennan tröppugang og enduðu í bestu liðum landsins.“

Voru á leiðinni erlendis þegar kórónufaraldurinn skall á

„Við vorum á leiðinni út áður en öllu var skellt í lás út af Covid-19. Polo var búið að styrkja okkur, það var búið að kaupa flugmiðana og allt klappað og klárt. Svo var allt sett í lás og mótinu frestað út af faraldrinum. Við fengum samt flugmiðana og svona endurgreidda svo það var ekkert vesen. Við vorum samt alveg spenntir, bara fimm vinir á leiðinni til Danmerkur að spila Counter-Strike – það er bara gaman,“ sagði Kristján og viðurkenndi að þeir hefðu nú beint átt mikinn möguleika á að landa sigri á mótinu.

„Það er ekkert íslenskt lið að fara vinna svona mót erlendis.“

„Ég hef farið út þrisvar eða fjórum sinnum að spila Counter-Strike. Það fyrsta var þegar ég var svona 17 ára. Þá var okkur bara boðið út á mót fyrir 24 bestu lið í heimi. Geggjað dæmi og allt borgað fyrir okkur. Mamma var þó ekkert alveg að kaupa það þegar ég sagði henni að ég væri að fara erlendis að spila Counter-Strike og það væri búið að borga allt fyrir mig,“ sagði Kristján hlægjandi.

Að lokum hrósaði hann toppliði Dusty – toppliði Vodafone deildarinnar.

„Þeir eru náttúrulega bara með ´organizaton´ í kringum þetta, bara í tölvuleikjum. Viðurkenni að það er alveg frekar nett. Eru með bestu liðin í LOL [League of Legends] og CS. Við erum að reyna breyta því, þeir eiga eftir að vinna bestu liðin,“ sagði Kristján að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×