Flugfreyjur í skert starfshlutfall Vésteinn Örn Pétursson skrifar 2. september 2020 17:07 Ákvörðunin var tekin í síðustu viku. Vísir/Vilhelm
Flugfreyjur og flugþjónar Icelandair verða í 75% starfshlutfalli næstu átta mánuði. Þetta staðfestir Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, í samtali við Vísi. Ákvörðun um þetta var tekin í samráði við stjórnendur flugfélagsins í síðustu viku, til þess að forðast að til hópuppsagna kæmi hjá flugfélaginu vegna stöðunnar sem nú er uppi í ferðaþjónustu hér á landi. Allir sem hingað til lands koma þurfa nú að sæta tvöfaldri skimun fyrir kórónuveirunni og fimm daga sóttkví á milli. Frá því reglurnar tóku gildi 19. ágúst hefur komufarþegum hingað til lands fækkað umtalsvert og fyrirtæki í ferðaþjónustu sjá mörg hver fram á erfiðan vetur. Guðlaug Líney Jóhannsdóttir er formaður Flugfreyjufélags Íslands.Vísir/Vilhelm Einróma afstaða starfsfólks Í samtali við Vísi segir Guðlaug Líney að málið hafi ekki verið í höndum Flugfreyjufélagsins. Hver starfsmaður hafi sjálfur þurft að samþykkja að skerða starfshlutfall sitt. Hún segir þó að einróma samstaða hafi náðst meðal starfsfólks um ákvörðunina, sem hafi verið tekin með það fyrir augum að forða hópuppsögn starfsfólks. Guðlaug bendir þá á að í ákvæðum laga um hópuppsagnir sé kveðið á um að leita skuli leiða til að forðast slíkar uppsagnir, sé þess kostur.
Fréttir af flugi Icelandair Vinnumarkaður Kjaramál Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Sjá meira