Dusty hafði betur gegn Þór Bjarni Bjarnason skrifar 2. september 2020 11:45
Dusty sigraði Þór 16-6 í gærkvöldi í fyrstu umferð Vodafone-deildarinnar. Kortið Mirage var valið af Dusty sem var heimavallarliðið í þessari viðureign. Leikmenn Dusty mættu ferskir til leiks og stýrðu frá upphafi takti leiksins. Þeir settu í fimmta gír en Þórsar reyndu að spyrna við og í annarri lotu þá náði Þór yfirtölu fimm á móti þremur leikmönnum Dusty. Það dugði þó ekki til því fallbyssurnar StebbiC0C0 (Stefán Ingi Guðjónsson) og EddezeNNN (Eðvarð Þór Heimisson) sýndu hvers vegna þeir eru oft taldir vera með bestu leikmönnum landsins og keyrðu lotuna heim. Þessar fyrstu lotur settu tóninn fyrir tiltölulega ójafnan leik. Þó er ekki við leikmenn Þórs að sakast því ADHD (Kristófer Daði Kristjánsson) og ReaN (Andri Þór Bjarnason) gáfust ekki upp. Um miðjan fyrri hálfleik leit út fyrir að Þór myndi standa í Dusty þegar ADHD felldi þrjá af leikmönnum Dusty með vappanum(awp) og færði Þór sína fyrstu lotu. ReaN keyrði svo næstu lotu heim þegar að hann felldi fjóra af fimm leikmönnum Dusty. Þetta dugði þó ekki til þar sem Dusty fundu fljótt taktinn aftur með EddezeNN í fararbroddi sem fór hamförum og Þór átti engin svör gegn öflugum EddezeNN. Staðan var 10-5 fyrir Dusty í hálfleik. Þór byrjaði seinni hálfleikinn vel með því að taka fyrsta lotuna. En Dusty slógu á fingurnar á þeim þrátt fyrir að hafa verið verr staddir fjárhagslega. Eftirleikurinn var Dusty mönnum auðveldur og þeir sýndu gott flæði og einbeitingu í spilamennsku sinni. Þó var smá púki kominn í StebbaC0C0 í síðustu lotunni, eftir að hafa fellt tvo af leikmönnum Þórs með awp tók hann sirkus hreyfingu og hoppaði í heilan hring áður en hann felldi síðasta leikmann Þórs og tryggði Dusty sigur, 16-6. Dusty menn flugu hreinlega af stað og það verður spennandi að sjá hvort þeir nái að halda þessum dampi. Critical maður leiksins var EddezeNNN en hann átti stórkostlegan leik. Hann skapaði mörg tækifæri fyrir sína menn sem og stóð sig feykilega vel undir pressu. EddezeNNN lauk leiknum með 33 fellur fyrir sitt lið. Frábær frammistaða sem tryggði honum einnig titilinn leikmaður fyrstu umferðar að mati sérfræðinga Vodafone-deildarinnar.
Þór Akureyri Vodafone-deildin Dusty Rafíþróttir Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Körfubolti „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Íslenski boltinn „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport