Viðskipti innlent

Thelma nýr hótel­stjóri á Foss­hótel Reykja­vík

Atli Ísleifsson skrifar
Thelma Theodórsdóttir.
Thelma Theodórsdóttir. Íslandhótel

Thelma Theodórsdóttir hefur verið ráðin nýr hótelstjóri á Fosshótel Reykjavík.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandshótelum. Þar segir að Thelma hafi lokið Bachelor of International Business in Hotel and Tourism Management frá háskólanum César Ritz í Sviss árið 2010 eftir að hafa lokið diplómanámi í hótel og veitingahúsarekstri frá Menntaskólanum Kópavogi í samstarfi við César Ritz.

„Meðal fyrirtækja sem Thelma hefur starfað fyrir eru  César Ritz, Centerhotels og Icelandair Hotels en hún hefur starfað í hótelgeiranum frá árinu 2003. Thelma starfaði í þrjú ár í bandaríska sendiráðinu þar sem hún gengdi stöðu siðameistara.

Thelma hefur starfað hjá Íslandshótelum frá árinu 2015 þegar hún kom að opnun Fosshótel Reykjavík og gegndi þar stöðu aðstoðarhótelstjóra til ársins 2018. Þar kom hún einnig að rekstri Haust Restaurant og Bjórgarðinum. Thelma tók í framhaldi við sem hótelstjóri á Hótel Reykjavík Centrum í mars 2018 ásamt rekstri á veitingastöðunum Uppsölum og Fjalakettinum.

Thelma hefur setið í fagnefndum Íslandshótela og komið að stefnumótun og innleiðingum ferla hjá hótelkeðjunni. Að auki starfar Thelma sem kennari í hótelstjórnun og veitingahúsarekstri við Opna háskólann í Reykjavík í samstarfi við César Ritz háskólann í Sviss,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×