Fótbolti

Árni Vill spilaði í naumu tapi gegn Shakhtar

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Árni og umboðsmaður hans.
Árni og umboðsmaður hans. mynd/cesare

Árni Vilhjálmsson var í byrjunarliði Kolos Kovalivka þegar liðið fékk stórlið Shakhtar Donetsk í heimsókn í úkraínsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Shakhtar í yfirburðarstöðu á toppi deildarinnar en þeir lentu í kröppum dansi gegn Árna og félögum eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir á fyrsta hálftíma leiksins með mörkum Taison og Junior Moraes. Vadym Milko minnkaði muninn fyrir Kolos fyrir leikhlé og staðan í hálfleik því 1-2.

Shakhtar komst í 1-3 eftir klukkutíma leik en Kolos náði að skora tvö mörk með skömmu millibili og staðan orðin 3-3 þegar 15 mínútur lifðu leiks.

Junior Moraes tókst að tryggja gestunum 3-4 sigur með marki á 81.mínútu.

Árni spilaði allan leikinn fyrir Kolos sem er í 6.sæti deildarinnar en 12 lið leika í úkraínsku úrvalsdeildinni.

Á sama tíma var spilað í dönsku úrvalsdeildinni þar sem Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi FCK sem tapaði fyrir Horsens á heimavelli, 0-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×