Neymar lofaði Beckham að spila fyrir Inter Miami Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2020 20:15 Neymar með þeim Kevin Trapp og David Beckham á tískusýningu í París. Getty/Dominique Charriau
Inter Miami CF á von á góðum liðstyrk í framtíðinni en Brasilíumaðurinn Neymar ætlar sér að spila með liðinu á næstu árum. David Beckham fer fyrri eigendahópi Inter Miami CF sem hefur leik í MLS-deildinni á þessu ári. Miami spilar þó ekki á nýja leikvangi sínum, Miami Freedom Park, fyrr en í fyrsta lagi árið 2022. Það eiga margir von á því að þekkt nöfn klæði sig í búning Inter Miami ekki síst vegna aðkomu David Beckjam. Brasilíumaðurinn Neymar lofaði Beckham þannig að spila fyrir Inter Miami eins og sjá má hér fyrir neðan. Neymar Inter Miami pic.twitter.com/WfUw5yNYFq— B/R Football (@brfootball) February 10, 2020 „Það var ég sem bað um það að fá að spila fyrir þetta félag. Ég vil það. Ég sagði við hann að ég myndi spila þarna einn daginn,“ sagði Neymar. Neymar er núna 28 ára gamall og leikmaður franska liðsins Paris Saint Germain. Neymar kom til PSG árið 2017 en hefur unnið markvisst af því síðustu misseri að komast aftur til Barcelona. Neymar er með 13 mörk og 6 stoðsendingar í 14 deildarleikjum með PSG á leiktíðinni en skoraði bara eitt mark í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þar sem hann spilaði aðeins 134 mínútur af 540. Það er hins vegar ekkert auðvelt að fá slíkt í gegn þegar þú ert með svakalegan launapakka og varst keyptur á 222 milljónir evra. Samningur Neymar við franska félagið rennur út í júní 2022. Það er líklegt að PSG verði búið að selja hann fyrir þann tíma. Endi Neymar hjá Inter Miami þá þarf félagið væntanlega að fá hann á frjálsri sölu. Beckham og félagar eru alla vega ekki að fara að kaupa menn eins og Neymar fyrir stórar upphæðir.
Fótbolti Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira